Tónlist

Adele á tónleikaferðalag á næsta ári

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Adele hefur staðfest að nýja platan hennar beri nafnið 25 og að hún fari á tónleikaferðalag á næsta ári. Þetta kemur fram á Twitter-síðu World Music-verðlaunanna.

„#adele staðfestir tónleikaferðalag 2015 eftir útgáfu nýju plötu hennar 25!“ stendur á Twitter-síðu verðlaunahátíðarinnar.

Adele fagnaði 26 ára afmæli sínu í maí á þessu ári og gaf í skyn hvert plötuheitið yrði á Twitter-síðu sinni.

„Bless, bless 25...Sjáumst aftur seinna á þessu ári x,“ skrifaði söngkonan.

Síðasta plata hennar, 21, kom út árið 2011 og vakti gríðarlega lukku um heim allan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×