Handbolti

Aðeins tveir úr silfurliði Íslands á ÓL í úrvalsliði Íslands í handbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísland fagnar silfurverðlaunum á ÓL 2008.
Ísland fagnar silfurverðlaunum á ÓL 2008. Vísir/AFP
Fjórir af átta leikmönnum í úrvalsliði handboltasögunnar á Íslandi voru fastamenn í liði Bogdan Kowalczyk á níunda áratugnum. Aðeins tveir úr silfurliðinu frá Peking komst hinsvegar í liðið.

Úrvalslið Íslands í handbolta karla frá upphafi handboltans til dagsins í dag hefur verið valið en Morgunblaðið fékk fólk úr handboltahreyfingunni til að velja bestu handboltamenn allra tíma á Íslandi.

Kristján Jónsson hélt utan um valið og segir frá úrvalsliðinu í Morgunblaðinu í dag. Framtakið er til fyrirmyndar en í gær var tilkynnt hverjar voru í úrvalsliði kvenna.

Það eru aðeins Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson, tveir langmarkahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi, sem komast í úrvalsliðið af leikmönnunum sem komu Íslandi í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Peking 2008.

Það er ljóst að það er ekkert auðvelt að gera upp á milli margra þeirra frábæru handboltamanna sem spilað hafa fyrir Ísland í gegnum tíðina. Það er nefnilega svo sannarlega nóg að taka.

Liðið undir stjórn Bogdan Kowalczyk kom Íslandi aftur í hóp bestu landsliða heims á níunda áratugnum og þeir Alfreð Gíslason. Kristján Árason, Einar Þorvarðarson og Þorgils Óttar Matthiesen voru allir lykilmenn í því liði. Valdimar Grímsson, sem komst einnig í úrvalsliðið, spilaði einnig mikið með Bogdan-liðinu undir það síðasta þótt að blómatími hans með landsliðinu hafi verið eftir að Bogdan hætti.

Snorri Steinn Guðjónsson, markahæsti leikstjórnandi íslenska landsliðsins frá upphafi og fastamaður í liðinu sem vann silfur í Peking og brons á EM í Austurríki virðist hafa verið langt frá því að komast í úrvalsliðið. Snorri Steinn var í úrvalsliði Ólympíuleikanna 2008 og stýrði sóknarleik landsliðsins í  um tíu ár.

Aron Pálmarsson, sem hefur að mestu spilað sem vinstri skytta með landsliðinu en leikstjórnandi með sínum félagsliðum, er í stöðu leikstjórnanda í úrvalsliðinu og Dagur Sigurðsson og Geir Hallsteinsson voru síðan næstir inn samkvæmt greininni í Morgunblaðinu í dag.

Alexander Petersson og Róbert Gunnarsson eru dæmi um tvo aðra leikmenn úr silfurliðinu sem gerðu tilkall til sætis í úrvalsliðinu en þeir voru frábærir með íslenska landsliðinu á bestu árum þess á milli 2007 og 2012.

Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson fengu reyndar næstum því fullt hús því 41 af 42 álitsgjöfum Morgunblaðsins völdu þá í liðið. Þeir eru glæsilegir fulltrúar silfurliðsins í úrvalsliðinu.

Úrvalsliðið:

Markvörður: Einar Þorvarðarson

Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson

Vinstri skytta: Alfreð Gíslason

Leikstjórnandi: Aron Pálmarsson

Hægri skytta: Ólafur Stefánsson

Hægra horn: Valdimar Grímsson

Línumaður: Þorgils Óttar Matthiesen

Varnarmaður: Kristján Arason

Næstir því að komast inn samkvæmt upptalinu í grein Morgunblaðsins:

Dagur Sigurðsson, leikstjórnandi

Geir Hallsteinsson, leikstjórnandi eða skytta

Alexander Petersson, hægri skytta

Geir Sveinsson, línumaður

Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður


Tengdar fréttir

Kveður eftir 15 ára feril

Geir Sveinsson valdi í gær 28 manna hóp sem hefur undirbúning fyrir HM í Frakklandi í lok desember. Róbert Gunnarsson er hættur að spila fyrir Ísland.

Snorri Steinn hættur í íslenska landsliðinu

Snorri Steinn Guðjónsson, aðalleikstjórnandi íslenska handboltalandsliðsins í meira en áratug, hefur ákveðið að gefa ekki lengur kost á sér í íslenska A-landsliðið í handbolta. Þetta er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið enda hefur Snorri stýrt sóknarleik liðsins í gegnum blómatíma þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×