Sport

Aðeins tvær af eistnesku þríburunum skiluðu sér í mark | Gull til Kenýu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þrírburar tóku þátt í maraþonkeppni kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu en maraþoninu fór fram í dag og lauk með sigri Jemimu Sumgong frá Kenýu.

Jemima Sumgong vann þar fyrsta gull Kenýubúa í markaþoni kvenna í sögu Ólympíuleikanna en Kenýa hafði áður unnið þrjú silfur og eitt brons í þessari grein.

Sumgong sem er 31 árs og móðir er aðeins þriðja konan frá Kenýu sem vinnur gull á Ólympíuleikun en Pamela Jelimo vann gull í 800 metra hlaupi 2008 og Nancy Jebet Langat gull í 1500 metra hlaupi á sömu leikum.

„Ég er mjög þakklát fyrir að vinna fyrsta gull Kenýu í Ríó. Það var heitt en við þurftum allar að komast í gegnum það. Ég var góða stjórn á líkamanum og hlustaði líka vel á hann," sagði Jemima Sumgong.

Eunice Kirwa frá Barein fékk silfur og Mare Dibaba frá Eþíópíu fékk brons.

Þrjár eistneskar systur vöktu líka mikla athygli í þessu hlaupi en þær Leila, Liina og Lily Luik eru eineggja þríburar og voru allar með í þessum úrslitahlaupi á Ólympíuleikunum.

Þær náðu þó ekki allar að klára hlaupið. Lily varð fyrst af þeim en hún kom í mark í 97. sæti á 2:48:29 klukkutímum. Hún var 24:25 mínútum á eftur sigurvegaranum.

Leila Luik varð í 114. sæti á 2:54:38 klukkutímum en Liina Luik náði ekki að klára og hætti skömmu áður en hún var hálfnuð.

Það vakti enn meiri athygli á þátttöku eistnesku þríburanna í hlauðinu að þær þrjár voru í miklu stuði eftir hlaupið og skelltu í dans saman. Greinilega miklir stuðboltar þar á ferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×