Að sniðganga besta kostinn

Fréttablaðið Fastir pennar 25. janúar 2012 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Starfsemi Barnahúss hefur staðið frá árinu 1998. Hlutverk þess er að sinna málum barna sem grunur leikur á að hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða áreiti.
Fljótlega eftir að starfsemi hússins hófst kom í ljós góður árangur af starfinu og starfið í húsinu hefur á þeim árum sem liðin eru frá stofnun þess fengið viðurkenningar og verið fyrirmynd að sambærilegum húsum í öðrum löndum.

Forstjóri Barnaverndarstofu greindi í erindi sínu á á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota frá nýrri rannsókn Barnaverndarstofu sem sýnir að börn sem þarf að taka af skýrslu vegna kynferðisbrota eru ánægðari með upplifun sína í Barnahúsi en í húsakynnum dómstóla. Könnuð var ánægja með skýrslutöku, viðhorf til þeirra sem skýrslurnar tóku og ánægja með upplýsingar bæði fyrir og eftir skýrslutöku. Þá var spurt um líðan eftir skýrslutöku og hvort viðkomandi hefði þótt erfitt að bera vitni. Allar voru niðurstöðurnar á einn veg að ánægja og líðan var betri í tengslum við skýrslutöku í Barnahúsi en þegar hún fer fram í dómhúsi.

Þegar kynferðisbrot gegn barni er rannsakað af lögreglu fer staðsetning skýrslutöku eftir ákvörðun dómara sem komast því miður ekki alltaf að þeirri niðurstöðu að hún eigi að eiga sér stað í Barnahúsi. Í Héraðsdómi Reykjavíkur hefur til að mynda verið komið upp sérstakri aðstöðu til að yfirheyra börn sem lítur vel út við fyrstu sýn en hlýtur að sæta furðu í ljósi þess að besti kosturinn er í boði í næsta nágrenni.

Eins og Bragi bendir á í frétt blaðsins í gær skiptir það sköpum að taka skýrslur af börnum við bestu mögulegu aðstæður. Það skiptir máli fyrir líðan barnsins, eins og gefur augaleið, en líka fyrir rannsókn máls, því að þeim mun betur sem barninu líður við skýrslutökur þeim mun meiri líkur eru á að fá skýra og ítarlega tjáningu þess.

Í ljósi þessa er það undrunarefni að lögregla og dómstólar skuli ekki alltaf leita til Barnahúss þegar barn þarf að greina frá kynferðisbrotum sem það hefur verið beitt. Hér er það besta í boði en það er ekki nýtt í öllum tilvikum þótt um sé að ræða svívirðileg brot gegn börnum.

Dæmi eru einnig um að það hafi spillt málum að láta barn ítrekað greina frá ofbeldi áður en það gefur skýrslu í Barnahúsi. Skemmst er að minnast hæstaréttardóms frá fyrri hluta síðasta árs þegar maður var sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn fimm ára barni. Í því tilviki gaf barnið vissulega skýrslu í Barnahúsi en ekki fyrr en rúmum mánuði eftir að það greindi lögreglu fyrst frá málinu. Í millitíðinni var barnið ítrekað yfirheyrt um atvikið hjá sálfræðingi, auk þess sem móðir þess lét það greina frá atburðinum. Sá gangur mála var talinn rýra sönnunargildi vitnisburðar barnsins.

Í landi þar sem til er Barnahús sem hefur verið fyrirmynd sambærilegra húsa víða um heim ætti slíkt aldrei að gerast. Sömuleiðis sætir furðu að stærsti dómstóll landsins skuli ekki taka þjónustu Barnahúss fagnandi í hverju því máli sem snýst um kynferðisbrot gegn barni.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 21:00

Mýtunni um þröngu píkuna haldið við

Ein kynlífsmýta, sem virðist ekki ætla að deyja, er sú að píkan verði víð við notkun. Í ný...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 13:18

Vaxtaverkir

Í byrjun þess árs sem ég útskrifaðist úr grunnskóla, árið 1996, voru Íslendingar 267.958. ...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 09:00

Ósagðar Íslendingasögur

Það var viðtal við Baltasar í Fréttatímanum þar sem hann segir frá áformum um glæpaþætti í...  

Meira
Fastir pennar 07. maí. 2012 06:00

Illa rökstudd delluhugmynd

Í nýju frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra til breytinga á fjölmiðlalögum e...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Óþörf styrjöld

Þetta á ekki að vera styrjöld í mínum huga, við eigum að reyna að ná málefnalega góðri nið...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Bölvun hlýrabolsins

Með hækkandi sól hafa áhyggjur mínar af klæðaburði sumarsins aukist. Það er augljóst að st...  

Meira
Fastir pennar 05. maí. 2012 06:00

Makríllinn og Evrópusambandið

Þarf deilan um makrílinn að hafa áhrif á aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið? Svarið er...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 09:00

Taka niður vegg

Tveir lagaprófessorar komast að þeirri niðurstöðu í álitsgerð, sem utanríkismálanefnd Alþi...  

Meira
Fastir pennar 04. maí. 2012 06:00

Allt of mikið uppi á borðinu

Austurrískur laganemi, Max Scherns, bað Facebook um að senda sér allar persónuupplýsingarn...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 09:00

Til hvers?

Þótt Frakkar deili um hvor væri skárri forseti, Sarkozy eða Hollande, vefst yfirleitt ekki...  

Meira
Fastir pennar 03. maí. 2012 06:00

Ólíðandi öfugþróun

"Okkur miðar ekki nægilega fram á við í að ná fram launajafnréttinu,“ segir Jóhanna ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Að sniðganga besta kostinn