Innlent

Abdulla gerði passa Adolfs Inga upptækan í Katar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Af þessu má ráða að Adolf Ingi verði ekki á meðal áhorfenda þegar Ísland mætir Egyptalandi í lokaleik strákanna okkar í riðlakeppninni í dag.
Af þessu má ráða að Adolf Ingi verði ekki á meðal áhorfenda þegar Ísland mætir Egyptalandi í lokaleik strákanna okkar í riðlakeppninni í dag. vísir/anton brink
Flest bendir til þess að Adolf Ingi Erlingsson hafi mætt á sinn síðasta leik á heimsmeistaramótinu í handbolta í Katar. Öryggisvörður gerði fjölmiðlapassa Adolfs Inga upptækan í vikunni.

Adolf Ingi, sem er í Katar sem leiðbeinandi á námskeiði ungra íþróttafréttamanna, greindi sjálfur frá því á Facebook-síðu sinni að skoðanamunur um hvað mætti taka með sér inn í höllina hafi orðið til þess að öryggisvörðurinn gerði passa hans upptækan. Virðist Adolf Ingi hafa tekið mynd af passa öryggisvarðarins því hann birtir mynd af passa og segir Abdulla Sultan Al-Kuwari vera þann sem Adolf Ingi lenti í orðaskaki við.

Af þessu má ráða að Adolf Ingi verði ekki á meðal áhorfenda þegar Ísland mætir Egyptalandi í lokaleik strákanna okkar í riðlakeppninni í dag. Ísland verður að leggja Egypta að velli ætli þeir að eiga möguleika á sæti í sextán liða úrslitum.  Egyptar eru gríðarlega vel studdir í Katar og má reikna með miklum baráttuleik sem hefst klukkan 16 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.

Ýmislegt hefur drifið á daga Adolfs Inga og nemenda hans í Katar. Þannig voru þau svo heppinn að hitta Dag Sigurðsson, þjálfara þýska landsliðsins, og spyrja hann spjörunum úr.

Þá hittu Dolli og félagar einnig sænsku handboltagoðsögnina Stefan Lövgren.

Ekki voru nemendurnir minna spenntir þegar að í ljós kom að leikmenn enska úrvalsdeildarliðsins Everton voru í næsta fundarsal á hótelinu í Doha. Tóku nokkrir myndir af sér með belgíska framherjanum Romelu Lukaku sem brosti sínu breiðasta.

Ekki náðist í Adolf Inga við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Adolf Ingi meðal þeirra sem sagt er upp

Ríkisútvarpið hefur boðað til mikilla uppsagna og eru starfsmenn boðaðir einn og einn í senn uppá 5. hæð til að taka á móti uppsagnarbréfi sínu.

Senuþjófurinn Adolf Ingi

Fátt meira rætt á samskiptamiðlum en viðtal Adolfs Inga við Lars Lagerbäck sem fram fór á sænsku.

Dolli mættur á ströndina

"Hæ. Ég heiti Adolf og ég er frá Íslandi," segir íþróttafréttamaðurinn Adolf Ingi Erlingsson í nýjasta innslagi sínu á vef Evrópska handknattleikssambandsins.

Adolf Ingi var lagður í einelti á RÚV

Heimildir Vísis herma að Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður hafi átt mjög erfitt uppdráttar í starfi eftir að Kristín H. Hálfdánardóttir varð yfirmaður íþróttadeildarinnar við Efstaleiti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×