Fótbolti

Aalesund ósigrað í rúma tvo mánuði | Lilleström í mikilli fallhættu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Elís og félagar hafa ekki tapað leik síðan 21. ágúst.
Aron Elís og félagar hafa ekki tapað leik síðan 21. ágúst. vísir/getty
Næstsíðasta umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta fór fram í kvöld.

Allir þrír Íslendingarnir hjá Aalesund voru í byrjunarliðinu þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Haugesund. Þar með lauk ótrúlegri sex leikja sigurgöngu liðsins. Aalesund tapaði síðast leik 21. ágúst.

Aron Elís Þrándarson, Daníel Leó Grétarsson og Adam Örn Arnarson spiluðu allan leikinn fyrir Aalesund í dag. Liðið er í 9. sæti deildarinnar með 39 stig.

Það voru einnig þrír Íslendingar í byrjunarliði Rosenborg sem tapaði 2-0 fyrir Strömsgodset á útivelli.

Hólmar Örn Eyjólfsson, Guðmundur Þórarinsson og Matthías Vilhjálmsson léku allan tímann fyrir Rosenborg sem er löngu búið að tryggja sér norska meistaratitilinn.

Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde sem hann 3-0 sigur á Stabæk. Molde er í 4. sæti deildarinnar og getur ekki endað ofar.

Gary Martin skoraði mark Lilleström í 1-1 jafntefli gegn Vålerenga á útivelli.

Lilleström, sem rak Rúnar Kristinsson úr starfi þjálfara fyrir rúmum mánuði, hefur ekki tapað í síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið er samt enn í mikilli fallhættu, í 12. sæti með 31 stig, einu stigi frá fallsæti.

Guðmundur Kristjánsson lék síðasta stundarfjórðinginn þegar Start tapaði 1-2 fyrir Brann á heimavelli. Start hefur gengið skelfilega á tímabilinu og er löngu fallið.

Aron Sigurðarson var ónotaður varamaður þegar Tromsö gerði 2-2 jafntefli við Sarpsborg 08.

Lokaumferðin fer fram eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×