Innlent

Á móti olíuvinnslu á Drekasvæðinu

Vinstri grænir leggjast gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra kallar Drekaútboðið óðagotsaðgerð, - olíuvinnsla samrýmist hvorki stefnu um sjálfbæra nýtingu orkulinda né skuldbindingum Íslands á alþjóðavettvangi.

Í næsta mánuði kemur í ljós hvaða olíufélög vilja hefjast handa á Drekasvæðinu en það var í janúar sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fylgdi olíuútboðinu úr hlaði, sem umhverfisráðhera telur hafa verið vanreifað.

"Þetta er svona óðagotsaðgerð í mínum huga, sem farið var í, og algerlega, eins og ég segi, að vanbúnu máli," segir Kolbrún Halldórsdóttir.

Hún telur Ísland í engan veginn í stakk búið til að gerast olíuríki og þetta sé ekki rétta leiðin til að koma samfélaginu á réttan kjöl. Við þurfum á öllum okkar mannauði að halda til að tryggja að við náum að standa upp aftur og reisa okkur á nýjan leik.

"Og þá er það ekki í mínum huga með því að fyrstu ákvarðanirnar séu svona stórar og groddalegar eins og olíuvinnsla á Drekasvæðinu óneitanlega er."

Hún minnir á að Vinstri grænir studdu ekki málið á Alþingi fyrir jól enda sé olíuvinnsla í andstöðu við hugmyndafræði flokksins um sjálfbæra þróun, sjálfbæra atvinnustefnu og sjálfbæra orkustefnu. Aðalatriðið sé þó skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

"Er þetta eitthvað sem samrýmist þeim skuldbindingum sem við erum þegar búin að undirgangast í umhverfismálum? Og þar staldra ég við. Mitt svar við þeirri spurningu er nei," segir Kolbrún.

En þýðir þetta að Vinstri grænir muni í stjórnarmyndunarviðræðum krefjast endurskoðunar á olíuleitarútboðinu? Svar umhverfisráðherra er:

"Ég mun beita mér fyrir því að þessi áform verði tekin undir heildarstefnumörkun í atvinnumálum og orkumálum. Já.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×