Sport

8. umferð heldur áfram í kvöld

Áttunda umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu heldur áfram í kvöld með tveimur leikjum. Klukkan 19:15 keppa Fram og FH og klukkan 20 verður flautað til leiks Grindavíkur og Keflavíkur en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. Umferðin hófst í gær þegar KA sigraði KR með þremur mörkum gegn tveimur. Jóhann Þórhallsson skoraði tvö mörk fyrir KA og Pálmi Rafn Pálmason eitt. Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Ágúst Gylfason úr vítaspyrnu skoruðu mörk KR.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×