Sport

49ers kastaði frá sér sigrinum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Larry Fitzgerald, útherji Arizona, skorar hér annað tveggja snertimarka sinna í gær.
Larry Fitzgerald, útherji Arizona, skorar hér annað tveggja snertimarka sinna í gær. vísir/epa
Arizona Cardinals var án síns aðalleikstjórnanda, Carson Palmer, í nótt gegn San Francisco 49ers en það kom ekki að sök þar sem liðið vann öruggan sigur, 33-21.

Það var ekki frábær leikur Arizona sem tryggði liðinu sigurinn heldur frekar klaufaskapur 49ers. Kardinálarnir skoruðu 17 stig eftir að hafa stolið þremur boltum af 49ers. Liðið þurfti aðeins að fara rúma 40 metra til að skora þessu 17 stig.

Drew Stanton leysti Palmer af hólmi og kláraði aðeins 11 sendingar af 28. Hann kastaði þó boltanum aldrei frá sér og gaf tvær snertimarkssendingar.

Hlauparinn David Johnson átti risaleik fyrir Arizona. Hljóp 157 jarda og skoraði tvö snertimörk.

Blaine Gabbert, leikstjórnandi 49ers, átti hörmulegan leik. Kláraði 18 af 31 sendingu og kastaði boltanum tvisvar frá sér. Áhorfendur voru byrjaðir að kalla nafn varaleikstjórnandans Colin Kaepernick en hann kom ekki við sögu.

Gabbert er með næstlélegasta vinningshlutfall allra leikstjórnanda í NFL-deildinni frá árinu 1970.

Arizona er nú búið að vinna tvo leiki og tapa þremur. San Francisco er aðeins búið að vinna einn og tapa þremur.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×