Innlent

„Vald sem fyrirbæri er viðbjóður“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Helgi Hrafn er ekki hrifinn af því að einhver hafi vald yfir öðrum.
Helgi Hrafn er ekki hrifinn af því að einhver hafi vald yfir öðrum.
Helgi Hrafn Gunnarsson, formaður Pírata, valdi það í ræðu sinni á Alþingi í dag að minna þingheim á hvað lýðræði er og hvers vegna það er mikilvægt. Hann lagði til að valdinu yrðu dreift þegar tækifæri gefast til þess og í raun vill hann helst að valdi sé eytt og því skipt út fyrir sjálfsákvörðunarrétt.

„Þótt sjálfsagt allir hér inni, og sennilega yfirþyrmandi meiri hluti þjóðarinnar, séu vissulega lýðræðissinnar og kalli sjálfa sig slíka þá eru viðhorfin til lýðræðis og til misjafnra útfærslna á því misjöfn.“

Hann sagði lýðræði mikilvægt vegna þess að frelsi er mikilvægt og sjálfsákvörðunarréttur að auki.

„Lýðræðið er mikilvægt vegna þess að vald sem fyrirbæri er viðbjóður eða ætti í það minnsta að heita svo. Vald yfir öðrum er aldrei sjálfgefið og krefst ávallt viðunandi réttlætingar. Það er þess vegna sem Alþingi hefur vald yfir þjóðinni, vegna þess að hér eru kjörnir einstaklingar. Ef svo væri ekki væri þetta vald óréttmætt og það bæri ekki bara að efast um það heldur að berjast gegn því með virkum hætti. En við búum í heimi þar sem vald er nauðsynlegt, því miður, en við búum líka í heimi sem breytist hratt og gerir það mögulegt að fjarlægja vald víða í samfélaginu, dreifa því, jafnvel niður á einstaklinga undir vissum kringumstæðum og að sumu leyti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×