Innlent

„Það mætir nú ekki allt fólkið á Austurvöll“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í hádeginu í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í hádeginu í dag. vísir/anton brink
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ætlar að hlusta á afstöðu fólksins í næstu kosningum og láta kjósendur þá dæma verk ríkisstjórnarinnar. Þetta sagði hann í viðtali í hádegisfréttum Stöðvar 2 í dag.

Búið er að boða til fjölmennra mótmæla á Austurvelli klukkan 17 í dag. Krafa fólksins er að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs fari frá og að það verið boðað til kosninga strax, en upplýsingar um tengsl ráðherrans við aflandsfélagið Wintris skekja nú samfélagið. Sigmundur var spurður að því hvort hann ætli að hlusta á kröfur fólksins í mótmælunum.

„Það mætir nú ekki allt fólkið á Austurvöll. Það hafa áður alloft verið mótmæli gegn ríkisstjórninni. Það er því ekkert nýtt að menn finni sér tilefni til þess að mótmæla þessari ríkisstjórn. Ég mun hlusta á afstöðu fólksins í næstu kosningum, til þess eru þær ætlaðir. Að gera upp hvernig menn hafa staðið sig við stjórn landins. Vilji menn taka aðra hluti með í reikninginn eins og þessi mál þá gera menn það. Ég er tilbúinn til þess að skýra þetta mál fyrir þeim sem vilja hlusta á upplýsingar um það,“ sagði Sigmundur.

Aðspurður hvort hann reikni með að sitja fram að næstu kosningum sagði forsætisráðherra:

„Já,já og láta kjósendur dæma verk ríkisstjórnarinnar og eins og ég segi, aðra hluti ef þeir vilja gera það.“

Gríðarlegur fjöldi fólks hefur boðað komu sína á Austurvöll í dag eða rúmlega 9000 manns. Þing kemur saman klukkan 15 í dag og hefur stjórnarandstaðan boðað vantrauststillögu á forsætisráðherra og ríkisstjórn hans sem og tillögu um þingrof og kosningar. Sigmundur Davíð hefur ekki íhugað að segja af sér vegna málsins.

Viðtalið við Sigmund Davíð má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Þögn í herbúðum sjálfstæðismanna

Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem Vísir hefur náð tali af í dag vildu lítið tjá sig um mál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra, og tengsla hans við aflandsfélagið Wintris.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×