"Mannlífið heldur áfram – markaðir eru opnir og börn ganga í skóla“

Fréttablaðið Innlent 12. janúar 2012 06:00
Hundruð þúsunda barna á Haítí hafa fengið tækifæri til að halda áfram skólagöngu sinni fyrir tilstilli hjálparsamtaka eins og UNICEF.
Hundruð þúsunda barna á Haítí hafa fengið tækifæri til að halda áfram skólagöngu sinni fyrir tilstilli hjálparsamtaka eins og UNICEF. Mynd/Sigríður víðis Jónsdóttir
Tvö ár eru liðin frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí og kostaði á þriðja hundrað þúsund mannslífa. Uppbyggingarstarfið hefur gengið hægt en UNICEF segir mikil tækifæri til langtímaþróunar samfélagsins.

Í dag eru tvö ár liðin frá því að geysiöflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí, en talið er að hátt í 300 þúsund manns hafi látist af völdum hans, auk þess sem eignatjón var gríðarlegt og 1,6 milljónir manna misstu heimili sín. Íbúar Haítí eru um 10 milljónir.

Síðan þá hafa hjálparstofnanir og alþjóðasamtök aðstoðað við endurreisn og umbætur samfélagsins, en Haítí var jafnvel fyrir hamfarirnar fátækasta land á vesturhveli jarðar.
Sem stendur hefst rúmlega hálf milljón manna enn við í neyðarskýlum víða um höfuðborgina Port-au-Prince og illdeilur á stjórnmálasviðinu, milli forseta og þings, hafa tafið nauðsynleg verkefni, líkt og uppbyggingu íbúðarhúsa og atvinnulífs. Þá gekk þar illvígur kólerufaraldur í fyrra, sem hefur sýkt um 500 þúsund manns og kostað sjö þúsund lífið.

Þó hefur mikið unnist á þessum tíma þar sem skólastofur hafa verið reistar fyrir tugi þúsunda barna og milljónir rúmmetra af húsarústum hafa verið fjarlægðar.

Sigríður Víðis Jónsdóttir, starfsmaður UNICEF á Íslandi, tekur í svipaðan streng en hún fór til Haítí í október síðastliðnum.

„Mannlífið heldur áfram - markaðir eru opnir og börn ganga í skóla. Það eru þess vegna einkennilegar andstæður á milli borgarinnar sem er enn í sárum eftir skjálftann og svo iðandi mannlífsins.“

Hún segir neyðina í tjaldbúðunum þó enn mikla.

„Þetta er einmitt fólkið sem er berskjaldaðast, fátækast og það fólk sem bjó áður við illan kost.“

Sigríður segir starf UNICEF, sem er meðal annars fjármagnað með framlögum heimsforeldra á Íslandi, sé á mörgum sviðum.

Þau hafi komið börnum í skóla, jafnvel þeim sem ekki höfðu áður tækifæri til að setjast á skólabekk, unnið gegn vannæringu og vatnsskorti og síðast en ekki síst unnið að barnavernd.

„Á því sviði höfum við unnið mikið og gott starf, í samstarfi við stjórnvöld, til dæmis við að kortleggja barnaheimili og munaðarleysingjahæli landsins og hinn mikla fjölda barna sem var á sínum tíma sendur burt í vist vegna fátæktar heima við.“

Þrátt fyrir óstöðugleika í stjórnmálalífi landsins segir Sigríður að náin samvinna við stjórnvöld sé lykilatriði.

„Við látum slíkt ekki hafa of mikil áhrif á starfið. Samvinna er eina leiðin þegar hugsað er til lengri tíma. Nú er neyðaraðstoð að miklu leyti lokið en við megum ekki stoppa. Það er mjög mikilvægt að halda áfram að vinna frekar að langtímaaðstoð og þróunarsamvinnu.“
Sigríður segir að þrátt fyrir hörmungarnar sem riðu yfir Haítí sé nú tækifæri til að færa þjóðina áfram.

„Vegna hamfaranna kom fjármagn inn í landið og nú er möguleiki á að laga hlutina almennilega til langs tíma. Sérstaklega málefni barna sem voru í lamasessi. UNICEF vill skila bjartri framtíð fyrir þessi hundruð þúsunda barna og nú er tækifærið.“

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 16. maí. 2012 20:13

"Takmarkanir skapa auðlindina"

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðd...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 19:15

Mismunurinn dygði fyrir Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum

Landsvirkjun segir ríkisstjórnina hafa sniðgengið arðsemi og hagkvæmni við gerð rammaáætlu...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 19:04

Snjóflóð í Glerárdal

Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um snjóflóð í suðurhlóðum Kerlingar í Glerárdal fy...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 19:00

Rof á trúnaðarsambandi

Lögmaður kvenna sem ætla í mál við Jens Kjartansson lýtalækni segir það rof á trúnaðarsamb...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 18:36

MMR: Sama niðurstaða og ef úrtakið er teygt upp í aldri

"Það virðist vera þannig, og er þannig, að fólk yfir 68 ára kýs mjög líkt þeim sem yngri e...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 18:02

Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem sakfelldu...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 17:04

Skekkja í forsetakönnun - kjósendur eldri en 67 ára ekki með

"Þetta er kerfisbundin skekkja, ég hefði haldið að aldursmarkið þyrfti að vera hærra," seg...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 17:00

Fingralangir nammigrísir handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo nammigrísi en þeir stálu sælgæti úr verslun í m...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 15:44

Listaverk í snjónum á Seyðisfirði

Þrátt fyrir að langt sé komið fram í maí snjóaði á Seyðisfirði í gær. Fréttastofu barst þe...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 15:24

Á 60 kílómetra hraða í 30-götu

Brot 89 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 15:22

Yfir 10 stiga hiti víða um land um helgina - líka rigning

Það fer að hlýna svo vorið er að koma, segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Á morgun...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 15:06

List án landamæra fékk mannréttindaverðlaunin

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, afhenti fulltrúum Listahátíðarinnar List án land...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 14:13

Frestur til að skila athugasemdum í Icesave-málinu rann út í gær

Í gær rann út frestur til að skila skriflegum athugasemdum í Icesave-málinu. Fjögur ríki s...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 14:01

Blátt áfram lyklakippurnar geta verið hættulegar börnum

Bláu hjartalöguðu lyklakippurnar sem seldar voru í landsöfnunni Blátt áfram í byrjun mánað...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 14:00

Segir netárásir á lítið varin fyrirtæki ógnvænlega þróun

Mörg dæmi eru um netárásir á fyrirtæki á síðustu tveimur árum, árásir sem voru mögulegar v...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 12:43

Handtekinn með hálft kíló af maríjúana og hálfa milljón

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann hálft kíló af marijúana við húsleit í íbúð í fjölbýlis...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 12:30

Besta tillagan að stofnun Vigdísar verðlaunuð í dag

Verðlaun verða afhent í hönnunarsamkeppni um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttu...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 12:15

Villti ökumaðurinn var próflaus

Björgunarsveitarmenn frá Kópaskeri og síðan Mývatni eyddu miklum tíma og fyrirhöfn í nótt ...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 12:15

Skylt að afhenda gögnin

Lögmanni tuga kvenna sem ætla í mál við Jens Kjartansson lýtalækni, er skylt að afhenda sk...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 11:55

Gras í Garðabæ

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ um miðjan dag í gæ...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 10:55

Kattafár í Svarfaðardal veldur lambadauða

"Þetta er auðvitað gríðarlegt tjón fyrir mig sem að öllum líkindum fæst ekki bætt," segir ...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 11:35

14 ára með fíkniefni

Lögreglan hafði afskipti af nokkrum mönnum í borginni í gær í tengslum við fíkniefnaeftirl...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 10:30

Situr í varðhaldi og vill milljón frá ríkinu

Einar ‚Boom‘ Marteinsson, fyrrverandi leiðtogi íslenskra Vítisengla, hefur höf...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 09:13

Kvótinn að klárast í strandveiðunum

Strandveiðibátar á svæði A, eða frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp eru búnir með maíkvó...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 09:00

Ók á staur - var að teygja sig eftir gemsanum

17 ára piltur missti stjórn á bíl sínum á Akureyri í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn ...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 09:00

Borgar bara undir tvo álfa af sjö

„Steinninn er 24 tonn!“ kallaði Arnar Kristjánsson úr krana sínum þegar búið v...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 09:00

Ráðuneytið segir Deloitte falsa tölur

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið segir endurskoðunarfyrirtækið Deloitte falsa tölur ...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 08:30

Norðmenn taka undir með Íslandi

Norsk stjórnvöld taka undir mörg sjónarmið Íslands í Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum,...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 08:00

180 kindum fargað vegna vanfóðrunar

Þrír sauðfjárbændur hafa verið kærðir til lögreglu í vetur vegna brota á lögum um dýravelf...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 07:19

Björgunarsveitir aðstoða fasta ferðamenn

Björgunarsveitarmenn frá Kirkjubæjarklaustri voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða e...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 07:00

Búist við stýrivaxtahækkun í dag

Búist er við því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynni um stýrivaxtahækkun í d...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 05:30

Heimaey sigldi í höfn í Vestmannaeyjum í gær

Heimaey VE 1, glæsilegt uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins í Vestmanneyjum, kom til heimahafna...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 05:00

Fólkið frætt í matjurtagarði

Grasagarðurinn í Laugardal býður nú í maí áhugafólki um matjurtarækt að líta við og fræðas...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 04:15

Ríkiskaup semja um flugferðir

Ríkiskaup hafa gert nýjan samning við Flugfélag Íslands um afsláttarkjör á flugsætum innan...  

Meira
Innlent 16. maí. 2012 04:00

Útlendingastofnun fái fjármagn

Innanríkisráðuneytið leggur til að fjárframlög til Útlendingastofnunar verði aukin svo hæg...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 21:30

Brynjar Níelsson: Heimild til þess að refsa piltunum, annað er þvæla

"Ég er ósáttur við að það sé ráðist að dómnum og verjandanum og þeir séu sakaðir um að brj...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 20:30

Iðnaðarráðherra óskar eftir íbúðaskiptum

Hótelkostnaður Íslendinga, sem eru staddir erlendis, hækkaði snarlega eftir hrunið með til...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 20:00

Segja enga ógn stafa af pilti sem stakk konu tólf sinnum

Samkvæmt áhættumati sem barnaverndaryfirvöld gerðu fyrir lögregluna stafar konu sem stungi...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 18:09

Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn

Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir eru næstum jöfn samkvæmt nýrri skoðanakönnun M...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 18:54

Sætta sig ekki vð sérstaka skattlagningu til að greiða niður lánsveð

Lífeyrissjóðirnir ætla ekki sætta sig við sérstaka skattlagningu til að hægt sé að greiða ...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 18:11

Fundu amfetamín og hnífa - meðlimur Outlaws handtekinn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á amfetamín og hnífa við húsleit í austurborginn...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 17:25

Stöðvuðu kannabisrækt í miðborginni

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Kannabisræktun...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 17:00

Refsiaðgerðir ESB gegn Íslandi ekki lengur fjarlægur möguleiki

Evrópuþingið mun í næsta mánuði fjalla um lagareglur sem heimila Evrópusambandinu að beita...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 16:49

Bað barnunga systur unnustu sinnar að nota kynlífshjálpartæki

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 16:11

Lést í hlíðum Esjunnar

Maðurinn sem varð bráðkvaddur í hlíðum Esjunnar á sunnudaginn hét Kjartan Jónsson. Hann va...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 15:43

Vigdís tók við nýju Símaskránni

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 15:03

Kjartan fer ekki í tónleikaferðalag með Sigur Rós

Kjartan Sveinsson, hljómborðs- og gítarleikari Sigur Rósar, fer ekki með hljómsveitinni í ...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 12:41

Annþór og Börkur ákærðir

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættuleg...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 12:01

Þorgerður Katrín vildi verða forstjóri Hörpu - átök í stjórninni

Fjórir umsækjendur um forstjórastöðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu komu helst til g...  

Meira
Innlent 15. maí. 2012 21:00

60 prósent þjóðarinnar notar símaskrána

"Það hafa auðvitað orðið miklar tæknibreytingar á síðustu fimm árum en staðreyndin er samt...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / "Mannlífið heldur áfram – markaðir eru opnir og börn ganga í skóla“