Innlent

„Ég get ekki hugsað mér mikið alvarlegri nauðgunarmál“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Athygli vekur að ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur sem liggja undir grun.
Athygli vekur að ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur sem liggja undir grun. Vísir/GVA
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að málin gerist ekki alvarlegri en í kynferðisbrotamáli sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að framkvæmd hefði verið húsleit í íbúð í Hlíðunum þar sem grunur leikur á að brotið hafi verið á tveimur konum. Tvær kærur hafa verið lagðar fram í málinu.

Athygli vekur að ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur sem liggja undir grun.

„Ég vil byrja á að taka það fram að ég veit ekki hvað er rétt í málinu en ef það er rétt sem ég les um að þarna sé um að ræða hópnauðgun, lyfjanauðgun og raðnauðgun þá gerast málin ekki alvarlegra,“ segir Guðrún við Vísi. Hún segir málið með þeim ljótari.

Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar, segir í viðtali við Vísi að það hafi ekki verið talið þjóna almannahagsmunum að fara fram á gæsluvarðhald.

„Þarna er maður sem að virðist hafa tvínauðgað og beitt öllum þeim alvarlegustu aðferðum sem beitt er. Og þegar um tvo er að ræða kemst ofbeldið inn í nýja vídd. Ég get ekki hugsað mér mikið alvarlegri nauðgunarmál. Mér er alveg gjörsamlega óskiljanlegt hvaða rök geta verið sterkari en bæði rannsóknarhagsmunir, að menn tali sig saman, og almannahagsmunir. Almannahagsmunir eru að brotin séu ekki endurtekin en þarna virðist maðurinn hafa endurtekið brotið nú þegar.“

Fyrri nauðgunin er sögð hafa átt sér stað eftir bekkjarskemmtun á skemmtistaðnum Austur.vísir/ktd
Eins og í Fifty shades of grey

Fyrri nauðgunin er sögð hafa átt sér stað eftir bekkjarskemmtun háskólanemanna á skemmtistaðnum Austur, í umræddri íbúð í Hlíðunum. Níu dögum síðar á hinni konunni að hafa verið nauðgað, í sömu íbúð, af báðum mönnunum eftir bekkjarskemmtun á Slippbarnum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fann lögregla í íbúðinni ýmis tól og tæki í íbúðinni, svo sem svipur, reipi og keðjur.

„Fyrst og síðast minnir þetta mig á bókina Fifty Shades of Grey. Hljómar eins og það eigi að normalísera þær pyntingar sem fjallað var um í þeirri bók. Burtséð frá því er þetta mál með ólíkindum ef fréttirnar af því eru réttar.“

Guðrún segist ekki vita nákvæmlega til hvaða aðgerða lögregla hafi gripið nú þegar.

„Það sem er þegar vitað er að réttarkerfið nær mjög illa utan um kynferðisbrot. Það er ekki nema mjög lítill hluti þessara brota sem leiðir til dóms. Auðvitað þarf að gera allt eins vel og hugsanlegt er til að ekki sé hægt að nota það sem rök að ekki hafi verið unnið eins vel og hægt er,“ segir Guðrún. Hún minnir á að breytingar séu í gangi hjá kynferðisbrotadeild lögrelgu.

„Ég hef miklar væntingar um að það verði til bóta við rannsókn þessara mála.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×