Körfubolti

„Bara eitt stórveldi á Íslandi í dag“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Systurnar Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur.
Systurnar Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur. vísir/ernir
„Það er alveg geggjað að taka þetta þrjú ár í röð. Tilfinningin er ólýsanleg,“ sagði brosmild og kampakát Berglind Gunnarsdóttir, leikmaður Snæfells, eftir að stúlkurnar úr Stykkishólmi tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð með sigri á Haukum í oddaleik á útivelli, 67-59, í gærkvöldi.

Snæfell, sem varð einnig bikarmeistari fyrr á tímabilinu í fyrsta sinn, hefur verið besta lið landsins undanfarin ár og heldur þeim titli með glans. Haukarnir höfðu Helenu Sverrisdóttur en Snæfell Haiden Palmer, liðsheild og óþreytandi sigurvilja sem skín úr andliti hvers leikmanns.

Sigurinn í gær var liðssigur eins og þeir eru svo oft hjá Snæfelli. Varnarleikurinn frábær, samheldnin í liðinu eins og hún verður best og svo er erfitt að tapa fyrir framan alla Hólmara sem voru mættir á Ásvelli í gærkvöldi.

„Ég veit ekki hver er að passa bæinn. Löggan eða eitthvað nema hún hafi komið líka. Það er enginn heima,“ sagði Berglind og hló aðspurð hver hefði fengið það hlutverk að passa upp Hólminn á meðan íbúarnir óku suður og fögnuðu með stúlkunum sínum.

Úrslitarimman var alveg mögnuð en Snæfell tapaði tvisvar sinnum afar naumt á Ásvöllum áður en liðinu tókst loksins að vinna á Ásvöllum. Þetta var fyrsti sigur liðsins á heimavelli Haukanna í vetur. „Við völdum rétta leikinn til að vinna!“ sagði Berglind glöð í bragði og hélt áfram:

„Þetta er búinn að vera körfubolti fyrir allan peninginn og áhorfendur hafa fengið ótrúlegt úrslitaeinvígi. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í þessu. Að klára þetta í oddaleik á Ásvöllum er ólýsanlegt. Við erum að vinna þetta þriðja árið í röð en þetta er alltaf jafngaman,“ sagði Berglind.

Landsliðskonan, sem blaðamaður þurfti að rífa úr óteljandi faðmlögum og kossaflensi við áhorfendur til að ná tali af henni, þurfti að taka ákvörðun um hvort hún yfirleitt gæti haldið áfram að spila körfubolta fyrir nokkrum árum vegna þrálátra axlarmeiðsla. Hún spilar oft þjáð og öxlin er vafin.

„Það eru þessir leikir og þessi tilfinning sem heldur manni gangandi. Þetta er ástæðan fyrir því að maður heldur alltaf áfram. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er lætur sig hafa það að vera teipaður á hverri einustu helvítis æfingu því maður er alltaf að fara úr axlarlið,“ sagði Berglind sem var eðlilega í sigurvímu er hún horfði yfir stuðningsmennina í stúkunni. „Að spila fyrir þennan klúbb, vá, fyrir þetta fólk og þennan klúbb er ólýsanlegt.“

Berglind sagði að nú væri stefnan sett á að vinna titilinn fjórða árið í röð: „Við tókum bikarinn líka í ár sem var nýtt. Nú höldum við bara ótrauðar áfram,“ sagði hún, en spurð hvort það sé bara eitt stórveldi á Íslandi í dag var hún fljót að svara: „Það er bara eitt stórveldi á Íslandi í dag.“


Tengdar fréttir

Ingi sýnir breikdans | Myndband

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var að sjálfsögðu í sjöunda himni eftir að stelpurnar hans tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Haukum í oddaleik á Ásvöllum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×