Íslenski boltinn

Willum um framtíð sína með KR: Er í eilítilli klemmu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR.
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR. vísir/anton
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, segir að engar viðræður hafi átt sér stað á milli sín og KR vegna þjálfarastöðu félagsins. Um það hafi verið gagnkvæmur skilningur en Willum tók við liðinu um mitt sumar og gilti samningurinn út tímabilið sem lauk í dag.

KR hefur verið á mikilli siglingu undir stjórn Willum og tryggði sér í dag sér Evrópusæti með því að næla í þriðja sæti með sigri á Fylki, eitthvað sem var óhugsandi þegar Willum tók við liðinu í 9. sæti með níu stig í lok júní. Hann útilokar ekki að taka við KR til frambúðar en sé mögulega kominn í klemmu vegna þess að hann er jú einnig í framboði fyrir Framsóknarflokkinn fyrir komandi alþingiskosningar þar sem hann situr í öðru sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi.

„Það er aldrei hægt að útiloka neitt í þessu. Fótbolti er búinn að vera hluti af mínu lífi alla tíð. Ég er í eilítilli klemmu ef ég fer að blanda því við annað sem ég er að berjast fyrir þessa dagana. Þetta er svolítið fókin staða,“ segir Willum Þór.

Hann segir að það hafi verið frábært að starfa innan félagsins frá því að hann tók við. Þar sé metnaðurinn mikill og allir samstíga. Þegar hann hafi tekið við hafi starfið snúist um að halda sæti KR í deildinni en það hafi fljótlega breyst eftir ágætt gengi í upphafi.

„Við höfum tekið þessa gömlu góðu aðferð á þetta, einn leik í einu og þannig reynt að vinna okkur upp töfluna. Svo settum við okkur það markmið að síðasti leikurinn myndi snúast um að ná Evrópusæti og hann gerði það. Að enda þetta svona er rosalega flott fyrir okkur. Þetta er afar mikilvægt fyrir félag eins og KR.“


Tengdar fréttir

Willum Þór tekur við KR-liðinu

Willum Þór Þórsson verður næsti þjálfari KR í Pepsi-deild karla í fótbolta og tekur við liðinu af Bjarna Guðjónssyni sem var rekinn í gær. Willum Þór stýrði fyrstu æfingunni hjá KR í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×