Enski boltinn

Walker framlengir við Spurs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Walker í leik með Spurs.
Walker í leik með Spurs. vísir/getty
Bakvörðurinn Kyle Walker er búinn að skrifa undir nýjan samning við Tottenham Hotspur.

Nýi samningurinn gildir til ársins 2021 þannig að hann er ekkert á förum á næstunni.

Þessi 26 ára enski landsliðsbakvörður gekk í raðir Spurs árið 2009 og er búinn að spila yfir 150 leiki fyrir félagið.

Spurs gengur vel að semja við lykilmenn þessi misserin en áður höfðu Danny Rose, Christian Eriksen, Eric Doer, Dele Alli, Harry Winks og Tom Carroll skrifað undir nýjan samning við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×