Fótbolti

Voru Barcelona-menn rændir spænska meistaratitlinum í vetur?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi og Luis Suarez.
Lionel Messi og Luis Suarez. Vísir/Getty
Barcelona og Real Madrid háðu í vetur einu sinni sem oftar mikið einvígi um spænska meistaratitilinn og á endanum höfðu leikmenn Real Madrid betur.

Barcelona vann 4-2 sigur á Eibar í lokaumferðinni en það dugði skammt þar sem Real Madrid tryggði sér spænska meistaratitilinn með útisigri á Malaga.

Þetta var 33. meistaratitill Real Madrid en sá fyrsti frá vorinu 2012. Börsungar voru búnir að vinna hann undanfarin tvö tímabil og alls þrisvar sinnum síðan að Real vann hann síðast.

Margir tapsárir stuðningsmenn Börsunga halda því hinsvegar fram að þeir hafi verið rændir spænska meistaratitlinum í vetur og það sem meira er að þeir leggja fram sönnunargöng á Twitter-síðunni Barcelona Comps.

Barcelona færa rök fyrir því að liðið hafi tapað tólf stigum á tímabilinu þökk sé mistaka dómara. Í sömu samatekt er sýnt fram á það að Real Madrid hafi fengið tveimur stigum meira þökk sé mistökum dómara.

Barcelona menn telja sig hlunnfarna um nokkrar vítaspyrnur þar sem um greinilega hendi var að ræða og þá var mark ekki dæmt í leik á móti Real Betis þar sem boltinn fór greinilega yfir línuna. Annað dæmi er þegar mark var dæmt af vegna rangstöðu sem var ekki rétt.

Það eru ekki bara stuðningsmenn Barcelona sem kvarta sáran yfir þessu því Gerard Pique lét einnig vel heyra í sér um það óréttlæti sem honum fannst Barcelona-liðið verða fyrir á þessu tímabili.

Það er hægt að sjá þetta athyglisverða myndband hér fyrir neðan.







Það fylgir þó ekki sögunni hversu mörg stig Barcelona-liðið náði í hús eftir að hafa fengið smá „hjálp“ frá dómurum.

Aðalástæðan fyrir því að Barcelona missti af titlinum er þó vafalaust tapleikir liðsins á móti Alaves, Celta Vigo, Deportivo La Coruna og Malaga. Þetta eru allt lið sem Barcelona vinnur vanalega á eðlilegum degi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×