Skoðun

Vorið 2016

Magnús Orri Schram skrifar
Á Íslandi getur fátækt fólk ekki leitað til læknis vegna kostnaðar. Skorið er niður þriðja árið í röð til námsmanna erlendis. Framhaldsskólar berjast í bökkum. Landspítalinn er með sjúkrastofur í bílskúrum og lækna í gámum.

Áherslan er á gamla atvinnupólitík. Unga menntaða fólkið flykkist til útlanda því ekki er nægt framboð af störfum fyrir háskólamenntaða. Mikill skortur er hins vegar á fólki til að sinna láglaunastörfum. Hagkerfi auðlindanýtingar bólgnar þannig út á kostnað hagkerfis nýsköpunar og hugvits.

Stærstu fyrirtækin starfa í erlendri mynt. Fá þannig betri kjör og lægri vexti. Vilja ekki vera í krónunni. Almenningur er hins vegar fastur innan hafta og verðtryggingar. Fær ekki einu sinni að skoða aðra möguleika.

Á sama tíma fá útvaldir að hagnast gríðarlega. Í landinu er ríkisstjórn sem hefur lækkað skatta á þá ríkustu. Sumir fá að kaupa fyrirtæki út úr bönkum. Aðrir nýta pólitísk tengsl til að sölsa undir sig sameiginlegar auðlindir. Peningar renna til stjórnmálamanna til að passa að kerfinu sé ekki breytt.

Á sama tíma bólgnar ríkissjóður út vegna túrista og banka. Útgerðin hefur aldrei verið ríkari. Mulið er undir ríkasta fólkið sem eykur auð sinn. Peningarnir geymdir í skattaskjólum enda krónan frekar léleg og leyndin ákjósanleg. Þar liggur líklega stór hluti hagnaðar af nýtingu auðlinda þjóðarinnar. Stjórnmálamenn þykjast koma af fjöllum. Fara undan í flæmingi og vilja ekkert gera. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að traust á stjórnmálum sé í lágmarki.

Næsta haust fær þjóðin tækifæri til að breyta. Þá verður hægt að leggja nýjar áherslur í mennta- og heilbrigðismálum. Móta nýja atvinnustefnu og greiða atkvæði um umsókn að ESB. Þá verður hægt að hækka skatta á ríkasta fólkið og hækka veiðileyfagjaldið. Breyta kvótakerfinu. Færa peninga frá forréttindahópum til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Innleiða ný vinnubrögð í stjórnmálum og ljúka gerð stjórnarskrár. Vonandi verðum við haustið 2016 komin með nýja ríkisstjórn með nýtt fólk, ný vinnubrögð og nýjar áherslur.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×