Innlent

Vonar að sjómenn endurmeti stöðuna ef sátt næst um fiskverð

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Heiðrún Lind segir hættu á að samningar við erlenda aðila tapist.
Heiðrún Lind segir hættu á að samningar við erlenda aðila tapist. vísir
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir samtökin ganga út frá því að af verkfalli sjómanna verði á fimmtudag. Hins vegar sé farið að þokast í átt að samkomulagi um fiskverð, sem verði yrði áfangasigur. Hún bindur vonir við að sjómenn endurmeti stöðuna ef verðlagsmál klárast fyrir fimmtudag.

„Þegar samningar náðust í júlí, sem sjómenn síðan felldu, þá var bókun um það að menn ætluðu að ræða fiskverð næstu tvö árin. Þannig að núna erum við að reyna að leysa það mál á mjög skömmum tíma sem er auðvitað flókið úrlausnar. Ég myndi telja það mjög góðan árangur ef við myndum ná saman, að verulegu leyti í það minnsta, fyrir fimmtudag um fiskverðsmálefni,“ segir Heiðrún Lind í samtali við Vísi.

Stærstu málin rædd fyrst

Heiðrún segir að önnur mál hafi fengið að sitja á hakanum á meðan unnið sé að samkomulagi um fiskverð. „Það er þá sjómanna að meta það hvort það séu komnar forsendur til þess að fresta verkfalli í lengri eða skemmri tíma á meðan menn klára að ræða önnur mál sem út af standa. Við teljum það í það minnsta góðan áfangasigur ef menn komast að samkomulagi um málefni varðandi fiskverð.“

Aðspurð segir hún að miðað sé við þá forsendu að sjómenn leggi niður störf eftir tvo sólarhringa og að undirbúningur sé eftir því. „Þetta er undirbúið með ýmsum hætti, en fer eftir því hvort það varðar útgerðina sjálfa, fiskvinnslu eða sölufyrirtæki. Allt eru þetta aðilar innan samtakanna og við erum að reyna að aðstoða alla þessa aðila eftir fremsta megni að undirbúa sig með það hvernig eigi að taka á málefnum þegar fiskvinnsla í landi stöðvast. Það eru ýmsir kostir í stöðunni, auðvitað flestir verri en sá að halda starfsemi áfram, en það verður reynt í það minnsta að takmarka tjón.“

Erlend viðskipti gætu tapast

Heiðrún segir tjónið geta orðið margvíslegt. Til dæmis sé hætta á að samningar við erlenda aðila tapist.

„Það felst auðvitað í því að vinna í landi mun stöðvast. Það er alltaf hætta á að starfsmenn hverfi til annarra starfa, það eru viðskiptavinir hér á landi og erlendis sem þurfa á afurðinni að halda og þessir aðilar leita þá einfaldlega annað eftir fiski. Hvort þau viðskipti tapist að öllu leyti er erfitt að segja til um og fer eftir því hversu lengi verkfall myndi standa,“ segir hún. Ómögulegt sé hins vegar að segja til um hvert beint fjárhagslegt tjón yrði.

„Miðað við útflutningsverðmæti sjávarútvegs þá skiptir auðvitað hver dagur verulegu máli.“

Samninganefndir sjómanna og útgerðarmanna reyna nú að afstýra verkfallinu sem á að hefjast eftir tvo sólarhringa, en deiluaðilar ætla að funda síðdegis.


Tengdar fréttir

Munur á markaðsverði og skiptaverði mikill

Svo virðist sem ekkert geti komið í veg fyrir verkfall sjómanna eftir að viðræður sigldu í strand í síðasta mánuði. Samningar lausir í fimm ár. Forgangskrafa sjómanna er að greitt sé markaðsverð fyrir aflann svo sjómenn fái réttan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×