Skoðun

Virkjum styrkleika í skólum

Skúli Helgason skrifar
Skólamál snerta kjarna jafnaðarstefnunnar því þar má skapa börnum jöfn tækifæri til að þroskast og eflast sem sterkir og skapandi einstaklingar. Galdurinn er að draga fram styrkleika allra barna í skólastarfinu og skipuleggja nám þeirra og frístundastarf með hliðsjón af áhugasviði og hæfileikum hvers og eins. Þetta er leiðarljós í stefnu Samfylkingarinnar þar sem málefni barna eru í forgangi.

Ég er alinn upp í skólakerfi þar sem svigrúm fyrir skapandi hugsun og frumkvæði var afar takmarkað allar götur upp í háskóla. Í dag eru allt aðrar og betri forsendur fyrir námi og leik sem hæfir hverjum og einum. Eitt af sérkennum okkar samfélags er almennur aðgangur barna að öflugum leikskólum og skólastarf fléttast nú í auknum mæli við fjölbreyttar frístundir, námsefni er innan seilingar á netinu og möguleikar á frumlegri framsetningu nemendaverkefna hafa aldrei verið jafn fjölbreyttir eftir innreið stafrænnar tækni.

Grunnurinn

Börn þurfa að öðlast trú á eigin getu og færni til að leysa fjölbreytt verkefni. Því er mikilvægt að auka samstarf leikskóla og grunnskóla og efla grundvallarfærni barna í læsi og stærðfræði, sem ræður miklu um hvernig þeim vegnar í frekara námi og síðar á vinnumarkaði. Þar skiptir sköpum að beita snemmtækri íhlutun til að styrkja stöðu þeirra sem standa höllum fæti. Við viljum líka bæta þjónustu við börn af erlendum uppruna og hefja markvissa móðurmálskennslu sem styður við almennt nám þeirra, ekki síst í íslensku. En við þurfum líka að styrkja innra starfið með aukinni teymisvinnu kennara og annarra fagstétta við að sinna ólíkum þörfum barna, auka svigrúm kennara til að einbeita sér að kennslu og starfsþróun og skólastjórnenda til að veita faglega forystu.

Skapandi skólastarf

Getum við ímyndað okkur skólakerfi þar sem er ekki miðlæg námskrá eða námsefni sem öllum er gert að tileinka sér heldur viðfangsefni og markmið þar sem börn og ungmenni geta valið sér námsleiðir og námsefni sem kveikja áhuga þeirra og forvitni? Í slíku skólakerfi er hlutverk kennarans ekki síst að þjálfa gagnrýna hugsun, rökræður og fagleg vinnubrögð, benda á mismunandi leiðir að settu marki en umfram allt ýta undir frumkvæði nemenda og auka sjálfstraust. Það býr mikill sköpunarkraftur í íslenskum börnum og kennurum þeirra, leyfum honum að njóta sín.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×