Innlent

Vill sátt við Val um flugbraut á Hlíðaenda

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir ill halda flugbraut í sátt við Hlíðarendamenn.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir ill halda flugbraut í sátt við Hlíðarendamenn. Fréttablaðið/Arnþór
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, lagði til í borgarráði í gær að strax verði hafnar viðræður við félög tengd uppbyggingu á svæði Vals á Hlíðarenda.



Markmiðið er að finna lausn á breyttu deiliskipulagi Hlíðarenda svo fyrirhugaðar byggingar komist fyrir á reitnum „án þess að vera hindrun fyrir flugbraut 06/24 eða svokallaða „neyðarbraut“ svo hún geti áfram haldið hlutverki sínu þrátt fyrir uppbyggingu á Hlíðarenda og allir hagsmunaaðilar geti vel við unað,“ segir í tillögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×