Bíó og sjónvarp

Vill hlutverk í Expendables 4

Hulk Hogan vill leika í fjórðu Expendables-myndinni.
Hulk Hogan vill leika í fjórðu Expendables-myndinni.
Hulk Hogan vill endilega fá hlutverk í næstu Expendables-mynd og er viss um að það væri "virkilega gaman" að vinna aftur með vini sínum Sylvester Stallone. 

Orðrómur hefur verið uppi um að fjölbragðaglímugoðsögnin vilji taka þátt í fjórðu Expendables-myndinni. 

Hogan hefur enn ekkert heyrt frá Stallone en þeir léku saman í Rocky III.

"Ég hef heyrt að ég hafi átt að leika í öllum Expendables-myndunum. Stallone ákveður þetta en það væri frábært að leika í The Expendables, virkilega gaman, sérstaklega að vinna með Stallone," sagði Hogan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×