Innlent

Vilja Unni Brá sem innanríkisráðherra

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum vilja að Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þingmaður Suðurkjördæmis, verði skipuð innanríkisráðherra.

Þeir skora því á Bjarna Benediktsson, formann flokksins, að gera það að tillögu sinni að skipa hana í innanríkisráðuneytið en eins og kunnugt er sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir af sér sem innanríkisráðherra í liðinni viku.

Í áskorun sinni segja bæjarfulltrúarnir að Unnur Brá hafi „sýnt með verkum sínum að þar fer öflugur og dugandi þingmaður. Hún hefur með menntun sinni og fyrri störfum aflað sér víðtækrar og nauðsynlegrar þekkingar á þeim málaflokkum sem heyra undir ráðuneyti innanríkismála.“

Þá telja bæjarfulltrúarnir eðlilegt að „fyrsti kostur við val á ráðherra sé þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi; höfuðvígi flokksins.“

Undir áskorunina rita Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og bæjarfulltrúarnir Páley Borgþórsdóttir, sem nýlega var skipuð lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, Páll Marvin Jónsson, Trausti Hjaltason og Birna Þórsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×