Innlent

Vilja nýtt húsnæði undir félagsmiðstöð

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ungmenni á Hellissandi bregða á leik.
Ungmenni á Hellissandi bregða á leik. Mynd/Dóra Unnars
„Nú bíðum við spenntir hvort samfélagið okkar verði ekki betra fyrir unga fólkið því þar er framtíðin.“ Þannig lýkur bréfi vinanna Ívars Reynis Antonssonar og Péturs Steinars Jóhannssonar til Snæfellsbæjar þar sem þeir biðla til bæjarins um betra húsnæði undir félagsmiðstöð sína.

„Við Pétur Steinar erum mjög góðir vinir og höfum tekið eftir því við félagsmiðstöðina hvað hún er ógeðsleg,“ sagði Ívar Reynir í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum oft kvartað yfir hvernig þetta er,“ bætir Pétur við.

Klósettin eru ekki boðleg að sögn drengjanna, vatnið óhreint og vaskurinn ekki í lagi. „Svo eru göt á veggnum þar sem er ryk og köngulóarvefir,“ lýsir Pétur. Eða „mjög líklega heilsuspillandi aðstæður“, eins og þeir segja í bréfinu.

„Það er skítur á gólfinu sem ekki er hægt að þrífa af, það er ekki hægt að vera á sokkum þannig að við erum alltaf í inniskóm sem félagsmiðstöðin á,“ útskýrir Ívar.

Stærsta vandamálið er þó það að lítið er um að vera í félagsmiðstöðinni en drengirnir eru uppfullir af hugmyndum að skemmtilegri afþreyingu. „Við gerum ekki neitt, hver er bara í sínu horni í sínum síma. Maður er nóg í símanum á daginn.“ 

Þeir Pétur og Ívar hafa þegar fundið lausn á vandamálinu sem þeim þykir sanngjörn og vel til fundin. „Það er alveg geðveikt hús fyrir félagsmiðstöð á Hellissandi og það er gamla björgunarsveitarhúsið,“ segir Ívar. Húsið kallast Líkn og stendur autt eftir að björgunarsveitirnar á svæðinu sameinuðust. 

„Það sem við vorum að hugsa með nýju félagsmiðstöðinni er að þá væri hægt að hafa bakstursdag eða fara í fótbolta í félagsmiðstöðinni.“ Strákarnir benda einnig á að í nýja húsnæðinu væri hægt að hafa kósí- og bíóherbergi, setja upp körfuboltakörfu, nálgast boðlegt klósett og hreint vatn.

Drengirnir hafa fengið svar frá bænum þar sem þeim er þakkað fyrir tillöguna, málið verði tekið til umhugsunar og nánara svar berist síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×