Innlent

Vilja heilsugæslu á hendi sveitarfélaga

Sveinn Arnarsson skrifar
Heilsugæslan á Akureyri Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ríkið taki yfir rekstur heilsugæslunnar á Akureyri frá og með næstu áramótum. Fréttablaðið/Völundur
Heilsugæslan á Akureyri Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ríkið taki yfir rekstur heilsugæslunnar á Akureyri frá og með næstu áramótum. Fréttablaðið/Völundur
Ekki eru allir sáttir við ákvörðun Kristjáns Þórs Júliussonar um að ríkisvaldið taki yfir rekstur Heilsugæslunnar á Akureyri (HAK).

Um næstu áramót mun rekstur HAK færast frá sveitarfélaginu til ríkisins. Samningar um rekstur heilsugæslunnar voru fyrst undirritaðir milli aðilanna árið 1997, þá sem tilraunaverkefni en síðar með þjónustusamningi við ríkið. Akureyrarbær vill enn halda í reksturinn en mætir ekki skilningi ríkisvaldsins. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að fjármagn vanti inn í samninginn til að bæjarfélagið geti staðið undir rekstrinum. Á árinu hefur bæjarfélagið notað skattpeninga bæjarins til að reka heilsugæsluna þrátt fyrir að ríkisvaldið eigi að greiða fyrir reksturinn samkvæmt lögum.

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherravar meðflutningsmaður þingsályktunartillögu Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, á síðasta kjörtímabili, um að setja ætti tímasetta áætlun um að færa rekstur heilsugæslustöðva landsins frá ríki til sveitarfélaga. Kristján Þór er enn á þeirri skoðun að ræða ætti þessa hluti en telur að við núverandi aðstæður sé ekki æskilegt að flytja heilsugæsluna með öllu til sveitarfélaga.

„Í þeirri stöðu sem heilsugæslan er núna tel ég þurfa að ljúka öðrum málum áður en til flutnings heilsugæslunnar kæmi. Ég mun hins vegar taka vel í að skoða þesssi mál ef þingsályktun af þessu tagi verður borin fram aftur.“

Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi og fyrsti varaformaður Velferðarnefndar telur Akureyrarbæ geta vel rekið heilsugæsluþjónustu og að hún eigi með réttu heima hjá sveitarfélögunum. „Ég tel það vera betra að hafa nærþjónustuna sem næst íbúum en sveitarfélög verða að hafa burði til að reka stofnanirnar. Akureyri hefur það og ríkisvaldið verður að tryggja að tekjustofnarnir séu í lagi hvað það varðar,“ segir Þórunn.

Ragnheiður RíkharðsdóttirVísir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, telur að sveitarfélög eigi að taka yfir rekstur nærþjónustunnar. Það sé hennar vilji að þingsályktun þess efnis verði samþykkt á næsta þingvetri.

„Þingsályktunartillaga sem ég flutti þess efnis á síðasta kjörtímabili náði ekki fram að ganga. Ég mun í upphafi þings óska eftir því við minn þingflokk að ég fái að bera fram þessa þingsályktunartillögu á komandi þingi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×