Bíó og sjónvarp

Vilja færa Sturlungu á stóra skjáinn

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Leifur B. Dagfinnsson segir kynninguna hafa hlotið mikla athygli þar ytra.
Leifur B. Dagfinnsson segir kynninguna hafa hlotið mikla athygli þar ytra. Vísir/gva
Framleiðslufyrirtækið True North kynnir nú verkefni sem byggt er á Sturlungasögu á kvikmyndabransasamkomunni American Film Market. Þessu greinir vefsíðan ScreenDaily frá en þar kemur fram að verkið sé annað hvort hugsað sem bíómyndaþríleikur eða sem sjónvarpsþáttaröð.

Verkefnið sem ber vinnuheitið Sturlungar: The Viking Clan er kynnt í greininni sem blanda af þáttaröðinni Vikings og The Godfather-þríleiknum. Það er nýstofnuð framleiðsludeild True North undir stjórn Kristins Þórðarsonar sem kynnir verkefnið. Friðrik Þór Friðriksson er viðriðinn sem framleiðandi.

„Kynningin um Sturlunga hefur hlotið mikla athygli, hún situr enn hjá einu kvikmyndaverinu en stór bandarískur kvikmyndaframleiðandi gæti slegist í för,“ er haft eftir Leifi B. Dagfinnssyni, framkvæmdastjóra True North á síðunni.

Fyrirtækið stendur nú í viðræðum við handritshöfunda um að skrifa fyrsta handritið upp úr Sturlungu en bókin gamla er í fjórum pörtum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×