Innlent

Vilja að kirkjur fái skattaafslátt

ingvar haraldsson skrifar
Flutningsmenn frumvarpsins segja viðhald krikna hafa setið á hakanum í efnahagsþrengingum síðustu ára.
Flutningsmenn frumvarpsins segja viðhald krikna hafa setið á hakanum í efnahagsþrengingum síðustu ára. vísir/stefán
Össur Skarphéðinsson hefur lagt fram lagafrumvarp um að virðisaukaskattur verði endurgreiddur af vinnu manna við viðhald kirkna og annarra samkomuhúsa trú- eða lífskoðunarfélaga.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að hægt hafi verið að fá virðisaukaskatt endurgreiddan vegna vinnu við íbúðarhúsnæði og sumarbústaði í nokkur ár. Því væri ekki úr vegi að sambærileg ákvæði giltu um trú- og lífskoðunarfélög enda hafi viðhald kirkna víða setið á hakanum í efnahagsþrengingum síðustu ára.

Flutningsmenn að frumvarpinu ásamt Össuri eru þeir Kristján Möller og Ögmundur Jónasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×