Innlent

Vigdís Grímsdóttir konan sem ökklabrotnaði á leið út úr bakaríinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vigdís Grímsdóttir var á leið út úr þessu bakaríi þegar hún ökklabrotnaði.
Vigdís Grímsdóttir var á leið út úr þessu bakaríi þegar hún ökklabrotnaði. Vísir/Eyþór/Pjetur
Rithöfundurinn góðkunni Vigdís Grímsdóttir er konan sem ökklabrotnaði á leið út úr Mosfellsbakaríi við Háaleitisbrait í september 2014. Féll hún við er útidyrahurð bakarísins skall á hana af miklu afli og viðurkenndi héraðsdómur í vikunni bótaskyldu bakarísins og eiganda húsnæðisins.

„Þetta er mjög réttlátur dómur og ég er bæði undrandi og glöð yfir þessu máli. Héraðsdómur virti það sem satt er. Ég er þakklát fyrir að réttarkerfi okkar virki og að réttlætið hafi náð fram að ganga. Upphaflega vildi ég aðeins tryggja að aðgengið yrði lagað svo að þetta myndi ekki henda neinn annan. Þetta er eitthvað sem ég þarf að glíma við það sem eftir er ævi minnar,“ sagði Vigdís Grímsdóttir í samtali við DV.

Vísir fjallaði um dóminn í vikunni. í honum kom fram að almennt verði að leggja ríka skyldu á eigendur og umráðamenn fasteigna þar sem rekin er verslun um að gera eðlilegar ráðstafanir til að tryggja öryggi þeirra sem þar eiga um.

Fyrir dómi lýsti Vigdís því að þegar hún hafi sett hægri fótinn út fyrir dyrnar hafi útidyrahurðin skollið harkalega aftan á hana með þeim afleiðingum að hún kom skakkt niður á fótinn á gangstéttinni fyrir framan bakaríið. Var hún flutt á Landspítalann þar sem kom í ljós að hún hafði ökklabrotnað á hægri ökkla. Tveimur árum eftir slysið er hreyfigeta í ökklanum enn skert og notast Vigdís við staf.

Dómari fór meðal annars í vettvangsferð til þess að kanna aðstæður og var það upplifun hans „að hurðin lokaðist í einni, hraðri sveiflu.“ Í dóminum kemur fram að rekja mætti slysið til vanbúnaðar á hurðarpumpu útidyrahurðarinnar.

Í dóminum segir því að Mosfellsbakarí, sem umráðamaður verslunarrýmisins, og Hermann Bridde, sem eigandi þessa hluta fasteignarinnar, skuli sameiginlega bera skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem Vigdís hlaut þegar hún missteig sig á leið sinni út úr bakaríinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×