Innlent

Viðvörun frá Veðurstofu: Snarpar vindhviður næsta sólarhringinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vindhviður geta náð 30 m/s á Suðurlandinu en reiknað er með að dragi úr vindi annað kvöld.
Vindhviður geta náð 30 m/s á Suðurlandinu en reiknað er með að dragi úr vindi annað kvöld. Vísir/Pjetur
Veðurstofan vill vekja athygli á spá um hvassviðri með snörpum vindhviðum syðst á landinu í nótt og á morgun, föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá vakthafandi veðurfræðingi hjá Veðurstofu Íslands.

„Langt suður í hafi er víðáttumikið 983 mb lægðasvæði, sem þokast norður á bóginn. Hvessir því smám saman úr austri sunnanlands og vindhraði verður 13-18 m/s undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum í nótt og á morgun,“ segir í tilkynningunni.

Vindhviður geta náð 30 m/s á þessum slóðum en reiknað er með að dragi úr vindi annað kvöld. Vegfarendum með aftanívagna er ráðlagt að fara ekki um þessi svæði fyrr en vind lægir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×