Skoðun

Viðskiptavinir vilja umhverfisvænni valkosti

María Lovísa Árnadóttir skrifar
Að undanförnu hef ég verið virkari neytandi en vanalega enda staðið í framkvæmdum heima fyrir og þess á milli nýtt sumarið til þess að ferðast um fallega landið okkar. Hækkandi sól fylgdi líka sterkari hugur til þess að breyta betur í mataræði og lífsstíl og með því metnaður til að velja náttúruvænni vörur. Hef ég því verið að velja ýmislegt nýtt og áhugavert og keypt allt frá málningu yfir í ferskar matvörur beint frá bónda. Hafa þessir sumarmánuðir aukið vellíðan en þó umfram allt aukið vitund mína um það hversu mikið fellur til af rusli af umbúðum vara og hversu snúið það getur verið að velja umhverfisvæna kosti hér á græna landinu okkar.

Takmarkað val

Þó svo ég fari beint til bónda og kaupi fersk jarðarber og agúrkur þá enda ég engu að síður með plastöskjur og plastpoka sem eftir standa þegar varanna hefur verið neytt. Hvers vegna er það enn svo á okkar grænu eyju með allt okkar hugvit að okkur dettur ekkert betra í hug en að pakka flestu af því sem á að nota í nokkrar mínútur í umbúðir sem eru í raun gerðar til þess að endast að eilífu?

Viðskiptavinurinn hefur vald til að velja og hefur því töluverð áhrif á að draga úr sóun og úrgangi en engu að síður þarf viðskiptavinurinn að hafa kosti til að velja úr og þar koma íslensk fyrirtæki einna sterkast inn. Án meðvitaðra ákvarðana hjá fyrirtækjum um hvaða vörur og umbúðir er verið að skapa og flytja inn til landsins þá hefur viðskiptavinurinn mjög takmarkað val og er vald hans til þess að draga úr sóun og úrgangi skert.

Getum valið betur

Íslendingar hafa náð mörgum góðum markmiðum með meðhöndlun úrgangs en úrgangur eykst engu að síður og hendir hver íbúi landsins hundruðum kílóa af rusli á ári hverju. Þó svo að margir flokki rusl þá enda sem dæmi flestar plastumbúðir af matvöru enn í urðun og tekur árhundruð fyrir plastið að brotna niður ef það þá gerist einhvern tíma.

Það er ekkert „trend” hjá einhverjum fáum að vera umhugað um umhverfið heldur er það nauðsynleg vakning sem er og mun henda okkur flest og eru umhverfis­sinnaðir viðskiptavinir framtíð íslenskra fyrirtækja.

Viðskiptavinir verða sífellt meðvitaðri um umhverfisáhrif sinna valkosta og vilja nýta val sitt vel en þeir þurfa hjálp frá íslenskum fyrirtækjum með umhverfisvænni valkostum og góðri upplýsingagjöf. Saman getum við öll valið betur og saman sköpum við vænni og grænni veruleika sem við öll högnumst á.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×