Innlent

Viðskiptavinir Dróma skora á ráðherra

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Viðskiptavinir Dróma segja sig verða fyrir misrétti að fá ekki sama aðgang að banka og aðrir og skora á stjórnvöld að sjá til þess að lánasöfn þeirra fari til bankastofnunar með hagsmuni af eðlilegum viðskiptum til frambúðar.

Fulltrúar viðskiptavina Dróma, afhentu ríkisstjórninni í morgun undirskriftarlista og ákall til stjórnvalda um að lánasöfn þeirra verði flutt úr þrotabúinu og til bankastofnunar, þeir gagnrýna samviskuleysi og óbilgirni Dróma gagnvart lántakendum.

„Því Drómi er ekki banki og ekki með leyfi til að reka banka, það er þrotabú og við fáum einfaldlega ekki þá fyrirgreiðslu hjá Dróma sem við sættum okkur við, okkur finnst þetta vera misrétti í aðgangi að banka," sagði Sigurður Sigurðarson, viðskiptavinur Dróma.

Arion Banki tók við innistæðum viðskiptavina SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans á sínum tíma og er þar að auki stærsti kröfuhafi Dróma og afhentu viðskiptavinirnir fulltrúum Arion einnig í dag áskorun þess efnis að bankinn sýni viðskiptavinum Dróma jafnræði. Sigurður segir fulltrúa ríkisstjórnarinnar hafa tekið vel í þeirra erindi en málið sé augljóslega flókið.

„Arion Banki á svo að segja allar kröfur á hendur Dróma og hafa lýst yfir vilja sínum að taka yfir lánasafnið en einhverra hluta vegna nást ekki samningar um það, það er svo skrítið að Arion banki situr beggja vegna borðsins en getur ekki samvið við sjálfa sig," sagði Sigurður.

Atvinnuvegaráðherra sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun að verið væri að reyna að flýta vinnu við mat á eignasafni Dróma sem stendur yfir og þegar því sé lokið verði vonandi hægt að færa það inn í Arion banka þar sem innlánin fóru þangað.

„Ég held að allir viðurkenni að þessi leið sem þarna var farin, sem fjármálaeftirlitið fór í þessu tilviki hefur ekki reynst vel og það er miklu betra að fara sameiginlega með báðar hliðar eins og hefur verið gert nema í þessu tilviki," sagði Steingrímur J. Sigfússon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×