Fótbolti

Viðar Örn óstöðvandi í Svíþjóð | Skoraði tvö og er orðinn markahæstur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það gengur vel hjá kappanum að finna markið.
Það gengur vel hjá kappanum að finna markið. mynd/mff.se
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar lið hans vann öruggan sigur á Örebro, 3-0.

Viðar er því orðinn markahæstu leikmaðurinn í sænsku deildinni og hefur hann gert tólf mörk. Marcus Antonsson er næstmarkahæstur með tíu mörk en hann er genginn til liðs við Leeds United og mun ekki spila fleiri leiki með Kalmar á tímabilinu. Kári Árnason lék allan leikinn fyrir Malmö í kvöld.

Malmö er því komið í efsta sæti deildarinnar með 35 stig, einu stigi fyrir ofan Norrköping sem er í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×