Fótbolti

Viðar Örn og félagar áfram í toppbaráttunni eftir sigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viðar er markahæstur í ísraelsku deildinni.
Viðar er markahæstur í ísraelsku deildinni. vísir/getty
Maccabi Tel Aviv vann góðan sigur á Hapoel Haifa, 1-0, í ísraelsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Eina mark leiksins gerði Dor Peretz, en það var því miður í vitlaust mark og var það sjálfsmark sem skildi liðin að.

Viðar Örn Kjartansson var að venju samkvæmt í byrjunarliðinu en fór af velli á 77. mínútu. Þetta er annar leikurinn í röð sem Viðar skorar ekki í en leikurinn var hluti af 26. umferð deildarkeppninnar.

Maccabi Tel Aviv er í öðru sæti deildarinnar með 56 stig, jafnmörg stig og Hapoel Beer Sheva sem á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×