Fótbolti

Vidal búinn að semja við Bayern

Vidal með pennann á lofti í dag.
Vidal með pennann á lofti í dag. Mynd/fc bayern
Hinn magnaði landsliðsmaður Síle, Arturo Vidal, skrifaði í dag undir samning við FC Bayern München.

Hann kemur til félagsins frá Juventus og er sagður hafa kostað um 40 milljónir evra.

Bayern tilkynnti í síðustu viku að Vidal væri á leið til félagsins og vistaskiptin voru svo staðfest áðan. Hann skrifaði undir samning til 2019.

Vidal er 28 ára gamall. Bayern reyndi að fá hann til félagsins árið 2011 en hafði þá ekki erindi sem erfiði. Þá var hann leikmaður Bayer Leverkusen og fór frekar til Juventus.

Hann hóf feril sinn hjá Colo Colo í heimalandinu en fór svo til Leverkusen árið 2007. Hann var svo í fjögur ár hjá Juve.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×