Skoðun

Við viljum frið…

Signý Pálsdóttir skrifar
Öll börn eru í eðli sínu listamenn. Óbeislað ímyndunarafl, innlifun og sköpunargleði eru aðalsmerki þeirra sem slíkra. Þau lifa sig inn í ævintýrið og skapa ný ævintýri hvort sem er í leik eða listrænni tjáningu.

Það er ómetanlegt fyrir þroska hvers einstaklings ef hlúð er að sköpunargáfu hans með kynnum af list í sinni margvíslegustu mynd, listkennslu, hvatningu til að tjá sig og viðurkenningu fyrir framlag sitt.

Í menningarstefnu Reykjavíkurborgar gegna börn og menningaruppeldi mikilvægu hlutverki. Þar er lögð áhersla á að menning og listir séu snar þáttur í uppeldi og kennslu barna og ungmenna í borginni. Ekki síður er lögð áhersla á þátttöku barna, ungmenna og fjölskyldna í menningarlífinu og að framlag þeirra til menningar sé metið að verðleikum.

Á Barnamenningarhátíð í Reykjavík, sem hefst í dag, má sannarlega upplifa þessi markmið í verki. Þessi fjölskrúðuga hátíð er nú haldin í fimmta sinn og stendur til sunnudagsins 26. apríl. Um 120 viðburðir verða á hátíðinni í ár og fara þeir fram víðs vegar um Reykjavík. Gæði, fjölbreytni, jafnræði og gott aðgengi er haft að leiðarljósi við skipulagningu hátíðarinnar sem rúmar allar listgreinar.

Allir viðburðir á Barnamenningahátíð eru ókeypis og hafa verið það frá byrjun.

Hátíðin er ein af þremur stórum hátíðum sem Reykjavíkurborg heldur og eru þær skipulagðar af Höfuðborgarstofu. Þær eru þátttökuhátíðir líkt og Menningarnótt og Vetrarhátíð. Viðburðirnir mótast af frumkvæði þátttakenda sem eru leik- og grunnskólar, frístundamiðstöðvar, listaskólar, menningar- og listastofnanir, listhópar, listamenn, háskólar, kórar og félagasamtök svo eitthvað sé nefnt. Markhópur hátíðarinnar er frá tveggja ára börnum til unglinga á leið í framhaldsskóla.

Fyrir börn á öllum aldri

Dagskráin er í raun ótrúleg með ótal viðburðum stórum og smáum, allt frá Dimmalimm og Svanavatninu í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nemenda úr Listdansskóla Íslands og Gradualekórs Langholtskirkju í upphafi hátíðar til Bullumsulls í Laugardalslaug í lokin. Af hátíðum innan hátíðar má nefna sviðslistahátíð Assitej fyrir unga áhorfendur, Sumardaginn fyrsta í öllum hverfum borgarinnar og Ævintýrahöllina í Iðnó þar sem ganga má að opnum smiðjum og viðburðum um allt hús frá kl. 10 á morgnana og fram eftir degi frá miðvikudegi til laugardags.

Einnig er skemmtilegu ljósi brugðið á söguna eins og með sýningu í Ráðhúsinu og á Austurvelli – Slökkviliðsbílar, dælur og sírenur – sem fjallar um brunann mikla í miðbænum 1915, þegar stór hluti miðbæjarins brann til grunna á einni nóttu.

Opnunarhátíðin verður í Eldborg í Hörpu í dag, en þangað er öllum fjórðu bekkingum grunnskóla Reykjavíkur boðið til glæsilegrar dagskrár. Þar verður frumfluttur söngurinn „Það sem skiptir mestu máli“ sem Salka Sól og Gnúsi Yones sömdu út frá lýðræðislega kosnum hugmyndum fjórðu bekkinga um jafnrétti. Þar bar hæst frið, jafnrétti, ást og öryggi.

Nemendur í öllum leik- og grunnskólum borgarinnar hafa nú fengið litríkan bækling með sér heim til að skoða með fjölskyldunni og velja af dagskránni sem er aðgengileg á www.barnamenningarhatid.is.

Fjölskyldur utan Reykjavíkur eru boðnar sérstaklega velkomnar í borgina á viðburði hátíðarinnar.

Vonandi njóta sem flestir Barnamenningarhátíðar, sem verður umfram allt skemmtileg fyrir börn á öllum aldri.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×