Skoðun

Vertu til því lífið kallar á þig!

Guðrún Högnadóttir skrifar
Hvað dregur þig á fætur á morgnana? Er það glamrið í snjallsímanum á náttborðinu: 20 nýir póstar og fimm fundarboð fyrir 8.00? Er það stimpilklukkan sem krefst þinnar nærveru klukkan sjöfimmtíuogfimm stundvíslega? Eða – er það skýr tilgangur og mikilvægt lífsframlag sem lokkar þig að heillandi verkefnum dagsins (að ógleymdum ljúfum ilmi af hafragraut)?

Frumkvöðullinn Richard Branson var í Davos í vikunni og varð tíðrætt um mikilvægi þess að fólk og fyrirtæki tengdu sig við mikilvægt langtímaframlag frekar en fjárhagsleg skammtímamarkmið („Focus on improving lives and communities“). Hann minnti okkur á að fyrirtæki sem byggðu á tengslum starfsfólksins við sterkan tilgang döfnuðu vel og týndust ekki með tímanum. Hann nefndi t.d. að Barclays-bankinn vísar stöðugt í rætur sínar á 17. öld sem er að „…fjármagna metnað og tækifæri“. Stofnendur bankans töldu hlutverk sitt vera að halda hagkerfinu í góðum gír og að gera líf fólks betra.

Georg Merck, stofnandi lyfjarisans Merck, sagði: „…gleymum því aldrei að lyf eru fyrir fólkið. Ekki fyrir hagnaðinn. Hagnaðurinn fylgir réttri hugsun og þegar við munum þetta hafa hlutirnir alltaf gengið vel.“

Fleiri góðir menn minna okkur á mikilvægi tilgangs. Fræðimaðurinn og forgöngumaðurinn Victor Frankl miðlaði lærdómi sínum úr útrýmingarbúðum nasista – og taldi að skýr tengsl við sinn tilgang gerðu fólki kleift að lifa af mestu hörmungar mannkyns. Af tilgangi og æðruleysi má yfirstíga ómögulegar hindranir og skapa gjöfult samfélag. Arfleið Frankl er okkur öllum verðmæt – þekktu tilgang þinn: þaðan kemur ástríða þín og endalaus orka!



  • Hvort ert þú stöðugt með hugann við EBIDT-una eða fólkið sem þú þjónar?
  • Hvort getur þú betur svarað spurningunni „hvað á ég að gera?“ eða „af hverju er ég að þessu?“.
  • Veist þú með hvaða hætti þín vinna þjónar fólki, samfélögum og plánetunni okkar til lengri tíma?
  • Hvað munu barnabörn þín segja um framlag þitt stórt og smátt eftir þinn tíma?


Mundu að það að gera góða hluti gerir þér kleift að lifa góðu lífi. Branson sagði einnig: „Ef ég væri aftur 22 ára myndi ég skemmta mér konunglega við að uppgötva minn tilgang. Þaðan kæmi tækifæri mitt til að skilja þennan heim eftir aðeins betri en ég tók við honum!“

Hvernig væri að leiða þitt teymi inn í farsæla nýja tíma með skýrum svörum við spurningunni „af hverju“. Ég hvet ykkur til að sækja aftur heim sögurnar um af hverju vinnustaðir ykkar voru stofnaðir og finna gleðina í göfugum tilgangi. Vertu til að leggja hönd á plóg.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×