Formúla 1

Verstappen: Mér er alveg sama, venjulega er ég langt á undan Sainz

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Carlos Sainz endaði framar en Max Verstappen.
Carlos Sainz endaði framar en Max Verstappen. Vísir/Getty
Max Verstappen segir að sér sé alveg sama hvað Toro Rosso geri varðandi liðsskipanir í framtíðinni því hann sé venjulega á undan liðsfélaga sínum Carlos Sainz. Báðir eru ökumennirnir að hefja sitt annað tímabil í Formúlu 1.

Verstappen ræsti fjórði í ástralska kappakstrinum og bað á áttunda hring um að fá að koma inn á þjónustusvæðið til að ná í ný dekk því hans væru ónýt. Toro Rosso tók hins vegar Sainz inn og lét Verstappen aka áfram.

Verstappen var ekki ánægður með þetta og kom inn á þjónustusvæðið án þess að ræða það við liðið. Það leiddi til þess að stoppið hans varð frekar langt enda menn ekki undirbúnir undir komu hans.

Þegar Verstappen kom út á brautina aftur var fyrir aftan Sainz og ók hraðar. Hann bað um að Sainz hleypti honum fram úr. Toro Rosso varð ekki við því.

Aðspurður um hvað honum þætti um afstöðu liðsins og hvort hann teldi að liðsskipanir yrðu notaðar í framtíðinni sagði Verstappen í samtali við Motorsport: „Í hreinskilni sagt veit ég það ekki og mér er alveg sama. Venjulega er ég langt á undan [Sainz]. Þetta ætti að verða í lagi [í framtíðinni].“

„Að mínu mati hefðum við geta keppt við [Daniel] Ricciardo ef við hefðum tekið þjónustuhlé á réttum tímum. Að enda í tíunda sæti eru auðvitað mikil vonbrigði,“ bætti Verstappen við.

„Ég vissi að ég væri miklu fljótari í dag. Í hreinskilni sagt er þetta allt í lagi. Mér finnst ég hafa stjórn á hlutunum. Ég finn ekki fyrir pressu frá honum. Ég horfi fram á veginn, þar eru mínir keppinautar,“ sagði Verstappen að lokum.

Sainz sagðist eftir keppnina ekkert vita um þessi samskipti nema að hann hafði heyrt eftir að keppninni lauk að þau hefðu verið litrík.

Verstappen endaði tíundi en Sainz níundi. Sainz ræsti af stað í sjöunda sæti.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg vann í Ástralíu

Nico Rosberg kom fyrstur í mark í fyrstu Formúlu 1 keppni ársins. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, ríkjandi heimsmeistari Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×