Sport

Verður þetta næsti andstæðingur Gunnars?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thompson kláraði Ellenberger með tveimur frábærum spörkum.
Thompson kláraði Ellenberger með tveimur frábærum spörkum. Vísir/Getty
John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson, er þegar byrjaður að vinna í því að fá andstæðing fyrir næsta bardaga Gunnars.

Gunnar vann um helgina frábæran sigur á Brandon Thatch á mögnuðu bardagakvöldi í Las Vegas sem kunnugt er. Sigurinn vakti mikla athygli á Gunnari en þetta var hans fyrsti bardagi á stóra sviðinu í Bandaríkjunum.

Á sunnudagskvöld fór fram bardagakvöld á vegum UFC þar sem Stephen „Wonderboy“ Thompson gersigraði Jake Ellenberger í veltivigt, sama þyngdarflokki og Gunnar keppir í.

Úr bardaganum í gær.Vísir/Getty
Kavanagh skrifaði á Twitter-síðu sína bæði fyrir og eftir bardagann að hann sé hrifinn af Thompson og að hann væri spenntur fyrir því sjá hann berjast næst gegn Gunnari í Dyflinni í október.

Enn fremur sagði hann að bardaginn gæti verið aðalbardagi kvöldsins og beindi hann orðum sínum að Sean Shelby, sem er einn áhrifamesti maður innan UFC og starfar við það að raða niður bardögum.

Sjálfur sagði Thompson eftir sigurinn á Ellenberger að hann væri spenntur fyrir því að berjast gegn Gunnari.

„Ég held að það væri mjög áhugaverð viðureign. Ég veit að hann er alvöru bardagamaður í gólfinu en ég er til í hvað sem er núna,“ sagði hann.

Vísir/Getty
„Ég vil komast inn á topp fimm (á styrkleikalistanum) og gera atlögu að titlinum. Þess vegna erum við í þessu - við viljum allir verða bestir.“

Thompson er þekktur sem öflugur sparkboxari (e. kickboxing) og má gera ráð fyrir því að það yrði áskorun fyrir Gunnar að takast á við hann. Gunnar sýndi þó gegn Thatch um helgina að hann getur vel barist fyrir sínu standandi og komið andstæðingum sínum niður á gólf með þungum höggum.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Gólfið er minn vígvöllur

"Þetta er það sem við höfum verið að vinna með og oft sést ekki það sem skiptir máli í bardaganum," sagði sigurreifur Gunnar Nelson við Vísi skömmu eftir bardagann í nótt.

Sjáðu Gunnar Nelson hengja Thatch

Gunnar Nelson stimplaði sig inn í Bandaríkjunum með látum þegar hann pakkaði Brandon Thatch saman á UFC189.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×