Innlent

Verðmæti afla 10 milljarðar í apríl

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Á tólf ára tímabili frá maí 2014 til apríl 2015 jókst aflaverðmæti um sjö prósent miðað við sama tímabil árið áður.
Á tólf ára tímabili frá maí 2014 til apríl 2015 jókst aflaverðmæti um sjö prósent miðað við sama tímabil árið áður. vísir/pjetur
Verðmæti afla upp úr sjó nam tíu milljörðum króna í apríl, það er 8,8 prósentum minna en í apríl 2014. Verðmæti þorsks var mest eða um 3,8 milljarðar króna sem er 7,2 prósenta samdráttur miðað við apríl í fyrra.

Verðmæti kolmunna var 35,7 prósentum minna en í sama mánuði í fyrra.

Á tólf mánaða tímabili frá maí 2014 til apríl 2015 jókst aflaverðmæti um sjö prósent miðað við sama tímabil árið áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×