Innlent

Vegir lokaðir vegna snjóflóðahættu

Súðavíkurvegi og Ólafsfjarðarvegi var lokað í gærkvöldi vegna snjólflóðahættu og Siglufjarðarvegur er líka lokaður vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Ekki er vitað hvort flóð hafa fallið á þessa vegi í nótt, en það verður kannað strax í birtingu og staðan endurmetin.

Núgildandi mat er að töluverð hætta sé á norðanverðum Vestfjörðum og á utanverðum Tröllaskaga, en töluverð slydda var á þessum slóðum í nótt, sem þyngir nýfallinn snjó, en þá getur snjóflóðahættan aukist. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×