Fótbolti

Van Nistelrooy mætir í Laugardalinn í haust

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nýtt þjálfarateymi Hollendinga.
Nýtt þjálfarateymi Hollendinga. Vísir/AFP
Ruud van Nistelrooy, fyrrum leikmaður Manchester United og Real Madrid, er á leiðinni til landsins í haust.

Van Nistelrooy hefur nefnilega verið ráðinn annar af aðstoðarþjálfurum Guus Hiddink hjá hollenska landsliðinu en Van Nistelrooy og Danny Blind munu aðstoða Hiddink í undankeppni EM.

Danny Blind mun taka við hollenska landsliðinu af Guus Hiddink árið 2018.

Ísland og Holland eru saman í riðli í undankeppni EM og mætast á Laugardalsvellinum 13. október næstkomandi.

Van Nistelrooy skoraði 35 mörk í 70 landsleikjum fyrir Holland á sínum tíma en hann lék sinn síðasta landsleik árið 2011.

Van Nistelrooy afrekaði það á sínum ferli að verða markakóngur í þremur úrvalsdeildum; í hollensku úrvalsdeildinni (1998–99 og 1999–2000), ensku úrvalsdeildinni (2002-03) og spænsku úrvalsdeildinni (2006-07).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×