Fótbolti

Van Gaal er ógeðsleg manneskja

Stoichkov og Jose Mourinho er Mourinho var aðstoðarþjálfari Barca. Stoichkov ber honum vel söguna ólíkt Van Gaal.
Stoichkov og Jose Mourinho er Mourinho var aðstoðarþjálfari Barca. Stoichkov ber honum vel söguna ólíkt Van Gaal. vísir/getty
Ungverska knattspyrnugoðsögnin Hristo Stoichkov er ekki í aðdáendaklúbbi Louis van Gaal, stjóra Man. Utd.

Stoichkov lék í sjö ár með Barcelona á sínum tíma og þá meðal annars undir stjórn Van Gaal sem hann kennir um að hafa hent sér frá félaginu.

„Ég ber enga virðingu fyrir Van Gaal. Hann er ógeðsleg manneskja," sagði Stoichkov sem er nú ekki þekktur fyrir að spara stóru orðin.

„Einu sinni meiddist ég á hné og við fórum að spila við Real Madrid. Hann lét mig þá spila bakvörð. Öðru sinni þegar ég var meiddur þá fór hann til eiginkonu minnar og spurði hvernig hún gæti verið gift svona vondum manni. Besti dagur lífs míns var þegar ég samdi við Barcelona en sá versti þegar ég yfirgaf félagið. Það var allt Van Gaal að kenna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×