Sport

Valur fær rúmar 20 milljónir fyrir Pedersen

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán

Patrick Pedersen, markakóngur Pepsi-deildar karla á síðustu leiktíð, spilar í Noregi á næstu leiktíð en Viking og Valur komust í gær að samkomulagi um kaupverð.

Sjá einnig: Pedersen seldur til Noregs

Samkvæmt heimildum Vísis borgar Pedersen 1,5 milljónir norskra króna fyrir Pedersen, jafnvirði rétt tæpra 23 milljóna króna. Þar af eru 20 milljónir fulltryggðar en afganginn fær Valur þegar Pedersen hefur uppfyllt ákveðnar kröfur um fjölda spilaðra leikja.

Pedersen skoraði þrettán mörk í 20 deildarleikjum í sumar en undanfarin tvö ár hefur hann skorað alls 28 mörk í 47 deildar- og bikarleikjum með Val. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Val.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×