Íslenski boltinn

Valskonur lögðu Íslandsmeistarana

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ásdís Karen (til vinstri), byrjuð að skora fyrir Val
Ásdís Karen (til vinstri), byrjuð að skora fyrir Val mynd/valur
Óvænt úrslit litu dagsins ljós í eina leik dagsins í A-deild Lengjubikarsins í kvennaflokki þegar Íslandsmeistarar Þórs/KA fengu Valskonur í heimsókn í Bogann á Akureyri.

Ásdís Karen Halldórsdóttir gerði eina mark leiksins en það gerði hún eftir rúmlega klukkutíma leik og kom gestunum yfir. Hin nítján ára gamla Ásdís Karen gekk í raðir Vals frá KR fyrr í vetur. 

Valur er því með fullt hús stiga eftir tvo leiki en liðið vann 4-0 sigur á FH í fyrstu umferð. Þetta var hins vegar fyrsti leikur Þórs/KA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×