Íslenski boltinn

Vallarstjóri Fylkis: Völlurinn er rosalega viðkvæmur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fylkismenn hefja leik í Pepsi-deildinni á viðkvæmum velli sínum gegn Breiðabliki á morgun klukkan 19.15.
Fylkismenn hefja leik í Pepsi-deildinni á viðkvæmum velli sínum gegn Breiðabliki á morgun klukkan 19.15. vísir/daníel
„Við verðum að spila á morgun. Það er ekkert annað í boði,“ segir Guðmann Hauksson, vallarstjóri á Fylkisvelli, í samtali við Vísi.

Fylkismenn fengu fyrsta leik liðsins í Pepsi-deildinni gegn Breiðabliki frestað frá sunnudegi til fimmtudags við litla hrifningu Blika.

„Við sjáum dagamun á vellinum núna. Hann er samt ekki í sínu besta formi. Við verðum bara að bíða og sjá,“ segir Guðmann.

Sjá einnig:Hjörvar: Voru Fylkismenn að kaupa sér tíma vegna meiðsla Alberts Ingasonar?

Vallarstjórinn hefur áhyggjur vegna fjögurra heimaleikja sem liðið spilar á sex dögum í Pepsi-deild karla og kvenna um miðjan maí.

Karlaliðið mætir ÍBV og KR 17. og 20. maí og kvennalið Fylkis á heimaleiki gegn Selfossi og Stjörnunni 14. og 19. maí.

„Þessi heimaleikjatörn er hluti ástæðunnar fyrir því að við báðum um frestun. Við vildum ekki fara í þessa leiki með völlinn lélegan. Við vorum ekkert að fresta bara til þess að fresta,“ segir Guðmann.

Sjá einnig:Ásmundur: Þeir eru kræfir í Pepsi-mörkunum

Guðmann og starfslið hans hafa sandað, vökvað og slóðað völlinn undanfarna daga en ekki notað yfirbreiðslu þó það hafi verið rætt.

„Það er ágætis hiti hérna á daginn en hann fer niður í mínus fjórar til fimm á nóttunni. Hér er 2-3 gráðum kaldara en vestur í bæ til dæmis. Völlurinn er rosa viðkvæmur,“ segir Guðmann.

„Við tökum bara því sem kemur úr þessu og reynum að gera gott úr því. Það er búið að gera það sem hægt er og nú verður bara spilað. Umtalið um leikinn hefur verið svo mikið að ég vonast nú bara eftir fullri stúku,“ segir Guðmann Hauksson.


Tengdar fréttir

Ásmundur: Félagið afar ósátt við vinnubrögð KSÍ

Ásmundur Arnarsson segir að það hafi verið vilji þjálfara og leikmanna Fylkis að spila gegn Breiðabliki á morgun. Að fresta leiknum til fimmtudags hafi verið millilending sem enginn sé í raun fyllilega sáttur við.

Pepsi-mörkin | 1. þáttur

Sjáðu styttri útgáfu af Pepsi-mörkunum þar sem farið er yfir 1. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×