Skoðun

Valkyrjur og víkingar

Anna Eyvör Ragnarsdóttir skrifar
Ég er svo heppin að búa í nágrenni við einn skemmtilegasta leikvöll á Stór-Reykjavíkursvæðinu og hefur aðsókn að honum verið mér uppspretta gleði og undrunar á hverjum degi nú á vordögum.

Eins og flestir vita eru allflestir róluvellir þessa lands hannaðir á svipaðan hátt. Börnin byrja að leika sér á þessum völlum strax þegar þau byrja í leikskóla og þessir vellir eiga síðan að uppfylla leikþörf þeirra, örva ímyndunarafl og sköpunargleði. Á þessum völlum eru nokkrar rólur, vegasalt, rennibraut, sandkassi og á einstaka stað klifurkastali. Allt er þetta byggt eftir sama staðli, líflaust, óspennandi og sterilt.

Krakkar í dag eru mötuð á afþreyingu, þau eru oft aðeins móttakendur en ekki gerendur og það veldur okkur áhyggjum. Við sem komin erum á miðjan aldur sjáum gjarnan í hillingum horfna æsku þar sem leikir eins og fallin spýtan, stórfiskaleikur, brennó og fleira er okkur í fersku minni og við hörmum að börnin okkar og barnabörn njóti ekki þess frelsis og útiveru sem við nutum. Náttúran og fjaran var leiksvæði okkar og þannig tengdumst við oft sjómennsku og sveitastörfum í gegnum leik. Tímarnir breytast og við þurfum að horfast í augu við annan veruleika og verðum að skapa börnum vettvang sem hæfir krafti þeirra, útsjónarsemi og hreyfiþörf.

Leikvöllurinn sem ég er að tala um er á Mýrargötunni og er í ófullkomleik sínum listaverk. Hann örvar ímyndunaraflið, æfir jafnvægi og styrk, eykur hugrekki og þor og er að öllu leyti andstæða hinna venjulegu leikvalla sem börnum þessa lands er boðið upp á.

Í vor þegar stundaskrá grunnskólanema er aðeins sveigjanlegri hafa margir notað tækifærið og heimsótt leiksvæðið og það hefur verið yndislegt að horfa á krakka á öllum aldri klifra, hanga, sveifla sér og almennt nýta sér það sem svæðið hefur upp á að bjóða og er greinilegt að ímyndunarafli þeirra eru engin takmörk sett.

Fyrir hátíð hafsins, sem var helgina 6.-7. júní, var bætt við fleiri þrautum og tækjum undir stjórn Lindu Mjallar Stefánsdóttur leikmyndahönnuðar og þrátt fyrir slæmt veður var völlurinn troðfullur báða dagana og bæði börn og fullorðnir á öllum aldri skemmtu sér stórkostlega.

Það má líka nota þennan völl til útikennslu þar sem efniviður hans tengist að mestu hafinu og sjómennsku og væri jafnvel hægt að vera í samvinnu við Sjóminjasafnið. Almennir leikvellir hafa ekki skírskotun til neins í daglegu lífi okkar eða fortíð og úr því má bæta með leiksvæðum af svipuðum toga eða skapa nýja með aðra nálgun. Það er til fullt af fallegum svæðum, t.d Fossvogsdalurinn, Elliðaárdalurinn, Klambratúnið, Hljómskálagarðurinn o.fl. Síðast en ekki síst er efniviðurinn að mestu ókeypis fyrir borgina!

Við skulum hætta að fjargviðrast yfir inniveru og tölvunotkun ungmenna en skapa þeim vettvang sem sæmir þeim og hæfileikum þeirra.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×