Fótbolti

Valencia og Sevilla í undanúrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Valencia fagna í kvöld.
Leikmenn Valencia fagna í kvöld. Vísir/Getty
Valencia tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar með 1-0 sigri á Las Palmas í kvöld og 2-1 samanlagt. Rodrigo skoraði eina mark leiksins á 20. mínútu og dugði það til sigurs.

Í hinum leik kvöldsins hafði Sevilla betur gegn B-deildarliðinu Mirandes, 3-0, og 5-0 samanlagt.

Valencia, Sevilla, Barcelona og Celta Vigo eru þar með komin áfram í undanúrslit keppninnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×