Skoðun

Út­litið skiptir miklu máli

Björn B. Björnsson skrifar

Nýlega undirritaði borgarstjórinn í Reykjavík samninga við bandarískt fasteignafélag um byggingu hótels við Hörpu.

Athygli vekur að samningar eru undirritaðir án þess að fyrir liggi hvernig hótelið muni líta út. Samkvæmt fréttum er hönnun bygginganna í höndum arkitektastofu í Ameríku, sem er að flýta sér að teikna svo hægt verði að hefja framkvæmdir sem fyrst.



Hér þarf að staldra við. Augljóst er að útlit þessara bygginga verður einkennandi fyrir miðborg Reykjavíkur og því skiptir það okkur öll miklu máli. Ekki síður samspil húsanna við umhverfi sitt, Hörpu, höfnina, Arnarhól og önnur hús sem rísa í nágrenninu á næstu árum.



Fáum dögum eftir að greint var frá hótelbyggingunni, tilkynnti borgin um nýbyggingar á Austurhafnarsvæðinu svonefnda, á bílastæðunum austan Tollhússins, á móti Bæjarins bestu. Þar á að reisa 21.400 fermetra verslunar-, þjónustu- og íbúðarhúsnæði.



Hér gefur borgin enn leyfi fyrir stórbyggingum í miðborginni án þess að hafa hugmynd um útlit húsanna sem þar munu rísa. Aðeins byggingarmagn og hæð húsa eru tiltekin í skilmálum.



Allar þessar byggingar munu ráða miklu um útlit miðborgar Reykjavíkur um hundruð ára og því er illt að útlit þeirra sé alfarið í höndum aðila sem ekki hafa fyrst og fremst hagsmuni af því að útlit þeirra sé framúrskarandi.



Þetta eru dýrar lóðir og skiljanlegt að framkvæmdaaðilar vilji halda hönnunarkostnaði í lágmarki. Það eru hins vegar beinir og brýnir hagsmunir Reykvíkinga að byggingar sem munu móta svo mjög umhverfi þeirra og ímynd séu í fremstu röð.



Alþjóðleg samkeppni arkitekta er ein leið til að ná þessu markmiði. Þó kostnaður af slíku sé nokkur, er hann lítill þegar horft er á byggingarkostnað þessara mannvirkja - og hverfandi ef horft er til lengri tíma.



Við eigum að hafa metnað til að gera Reykjavík að borg þar sem vönduð og spennandi hönnun er í fyrirrúmi. Fulltrúar okkar í borgarstjórn eru meðal annars kjörnir til að standa vörð um þann metnað.



Hvort þau valda því hlutverki verður auðséð næstu aldirnar.



Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×