Innlent

Úti að aka á læknadópi á Akureyri

Gissur Sigurðsson skrifar
Einkennilegt ökulag mannsins athygli lögreglu og eftir að hann var stöðvaður lék engin vafi á að hann var undir áhrifum.
Einkennilegt ökulag mannsins athygli lögreglu og eftir að hann var stöðvaður lék engin vafi á að hann var undir áhrifum.
Ökumaður var tekinn úr umferð á Akureyri á tólfta tímanum í gærkvöldi grunaður um akstur undir áhrifum lyfseðilsskyldra róandi lyfja og voru tekin blóðsýni úr honum.

Að sögn lögreglu vakti einkennilegt ökulag hans athygli lögreglu og eftir að hann var stöðvaður lék engin vafi á að hann var undir áhrifum.

Fjórir ökumenn voru svo teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og var einn þeirra réttindalaus og á ótryggðum bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×