Innlent

Utanríkisráðherra fundaði með varautanríkisráðherra Rússlands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Titov og Lilja funduðu í Ráðherrabústaðnum í dag.
Titov og Lilja funduðu í Ráðherrabústaðnum í dag. mynd/utn
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Vladimir Titov varautanríkisráðherra Rússlands í Ráðherrabústaðnum í dag en efnahagsmál, tvíhliða samskipti ríkjanna, svæðisbundin málefni og alþjóðamál voru til umfjöllunar á fundinum.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu ræddu ráðherrarnir „meðal annars leiðir til að auka möguleika á viðskiptum milli landanna auk þess sem málefni norðurslóða og önnur svæðisbundin samvinna var til umfjöllunar. Þá ræddu ráðherrarnir öryggismál í Evrópu og stöðuna við botn Miðjarðarhafs.“

Lilja segir Rússland mikilvægt samstarfsríki Íslands á mörgum sviðum og viljinn til góðra samskipta sé gagnkvæmur.

„Svæðisbundið samstarf er mjög gott, til dæmis á norðurslóðum og innan svæðisbundinna stofnanna. Á fundinum gafst okkur kærkomið tækifæri til að ræða um ýmis mál, þar með talin viðskipti milli þjóðanna sem við viljum auka þrátt fyrir fyrir erfiðar aðstæður. Þá var áhugvert að ræða við Títov og skiptast á skoðunum um brýn pólitísk úrlausnarefni á sviði alþjóðamálanna," er haft eftir Lilju í tilkynningu ráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×